Fara í efni

Markaðs og kynningarmál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202504093

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 495. fundur - 15.05.2025

Fyrir byggðarráði liggur að taka til umræðu markaðs og kynningarmál sveitarfélagsins.
Byggðarráð vísar fyrirkomulagi markaðs og kynningarmála sveitarfélagsins til vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.

Byggðarráð Norðurþings - 513. fundur - 15.01.2026

Til umræðu markaðs- og kynningarmál Norðurþings.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við Markþing um gildandi samning sem gerður var við Húsavíkurstofu.

Byggðarráð Norðurþings - 514. fundur - 29.01.2026

Á 513. fundi byggðarráðs 15. janúar sl. fól ráðið sveitarstjóra að óska eftir samtali við Markþing um gildandi samning sem gerður var við Húsavíkurstofu.

Fyrir byggðarráði liggur minnisblað sveitarstjóra frá fundi með forsvarsfólki Markþings sem haldinn var þann 23. janúar sl.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir endurskoðun á gildandi samningi.