Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

520. fundur 23. apríl 2026 kl. 10:00 - 14:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Benóný Valur Jakobsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Ársreikningur Norðurþings 2025

Málsnúmer 202603073Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs kemur Níels Guðmundsson, endurskoðandi ENOR og fer yfir ársreikning 2025 ásamt endurskoðunarskýrslu.
Byggðarráð þakkar Níelsi Guðmundssyni fyrir góða og ítarlega yfirferð á ársreikningi 2025 og vísar honum til seinni umræðu og staðfestingar í sveitarstjórn.

2.Viljayfirlýsing um samstarfs í tengslum við uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka

Málsnúmer 202604072Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að viljayfirlýsingu við Solstice Materials ehf. um samstarf í tengslum námavinnslu og uppbyggingu á Bakka. Um er að ræða móbergsvinnslu sem íblendiefni til sementsframleiðslu.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra að klára vinnu við yfirlýsinguna. Ráðið vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.

3.Ráðning slökkviliðsstjóra

Málsnúmer 202604052Vakta málsnúmer

Á fundi byggðarráðs 12. mars sl. fól ráðið sveitarstjóra að auglýsa eftir slökkviliðsstjóra.
Umsóknarfrestur rann út 7. apríl sl. Ein umsókn barst frá Henning Þór Aðalmundssyni.
Með fundarboði fylgdu gögn umsækjanda, minnisblað ráðningaráðgjafa um mat á hæfi umsækjanda og greinargerð frá ráðningaviðtali.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að Henning Þór Aðalmundsson verði ráðinn sem slökkviliðsstjóri Norðurþings.

4.Heimsókn frá Hraðinu

Málsnúmer 202603149Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs kom Stefán Pétur Sólveigarson frá Hraðinu kl. 11 og kynnti starfsemi Hraðsins árið 2026.
Byggðarráð þakkar Stefáni Pétri frá Hraðinu fyrir góða kynningu og samtal um starfsemina á árinu.

Byggðarráð lýsir ánægju sinni með starfsemi Hraðsins og hvetur forsvarsfólk Hraðsins til áframhaldandi dáða.

Byggðarráð lýsir því hér með yfir með stolti að Húsavík er Nýsköpunarbærinn.

5.Þurrkstöð við Hrísmóa næstu skref

Málsnúmer 202604073Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs mættu kl. 11:30 fulltrúar GG2023 ehf., Snæbjörn Sigurðarson og Haukur Marteinsson, og kynntu næstu skref í uppbyggingu þurrkstöðvarinnar á Hrísmóum við Húsavík.
Byggðarráð þakkar þeim Snæbirni og Hauki fyrir góða kynningu á næstu skrefum í uppbyggingu félagsins.

6.Markaðs og kynningarmál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202504093Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að samningi við Markþing.

Á fundinn mætti kl. 12:10, Helga Björg Sigurðardóttir formaður stjórnar Markþing, og kynnti áherslur félagsins.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að klára samning við Markþing og verður styrkur 7.000.000 kr á árinu 2026.

7.Ósk um upplýsingar frá Orkuveitu Húsavíkur

Málsnúmer 202604080Vakta málsnúmer

Undirrituð óskar eftir upplýsingum um viðskiptakjör fimm stærstu viðskiptavina OH vegna sölu á heitu vatni.

Aldey Unnar Traustadóttir
Aldey óskar bókað: Í gögnunum sem liggja fyrir kemur fram að ekki gilda sömu afsláttarkjör fyrir alla viðskiptavini OH. Undirrituð telur það óeðlilegt og ósanngjarnt og hvetur stjórn til þess að lagfæra það. Eðlilegra væri að sömu kjör myndu gilda fyrir alla stórnotendur og ef áhugi er fyrir því að veita afslátt (sem er að mati undirritaðrar í góðu lagi) þá ætti það að gilda fyrir öll fyrirtæki, ekki bara sum.

8.Mærudagar 2024 - 2026

Málsnúmer 202312102Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur beiðni um að veita sveitarstjóra eða staðgengli hans heimild til afgreiðslu leyfa í tengslum við Mærudaga 2026.
Byggðarráð samþykkir beiðnina.

9.Styrkbeiðni vegna alþjóðslegs skákmóts í Mývatnssveit 19.-22.nóvember 2026.

Málsnúmer 202604051Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsókn frá Skákfélaginu Goðanum um fjárstyrk vegna aðlþjóðlegs skákmóts í Mývatnssveit 19.-22. nóvember 2026.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Skákfélagið Goðann um 100.000 kr.

10.Tilnefning í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga

Málsnúmer 202205014Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk frá Þekkingarneti Þingeyinga um tilnefningu í stjórn og varastjórn Þekkingarnetsins til næstu tveggja ára. Aðalfundurinn fer fram 27. apríl nk. og þurfa tilnefningar að berast fyrir aðalfund. Samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna er standa að Þekkingarnetinu á Norðurþing að skipa aðalmann í stjórn til næstu tveggja ára.
Byggðarráð tilnefnir Jón Höskuldsson sem aðalmann í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga til næstu tveggja ára.

11.Loftlagsstefna Norðurlands eystra

Málsnúmer 202601048Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um að skipa fulltrúa Norðurþings í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd Loftslagsstefnu Norðurlands eystra sem samþykkt var á ársþingi SSNE í mars.
Byggðarráð skipar Elvar Árna Lund í samvinnuvettvanginn.

12.Í átt að inngildingu - viðtalsrannsókn meðal erlendra íbúa í Norðurþingi

Málsnúmer 202604081Vakta málsnúmer

Þekkingarnet Þingeyinga hlaut árið 2024 styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála til að framkvæma eigindlega rannsókn á reynslu og upplifun innflytjenda í Norðurþingi. Markmið verkefnisins var að afla hagnýtrar þekkingar um stöðu þessa ört stækkandi hóps og skapa traustari grunn fyrir sveitarfélög og stofnanir til að þróa þjónustu og úrræði sem mæta þörfum hans.
Í kjölfarið var gerð handbók til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög sem er til kynningar í byggðarráði ásamt niðurstöðum rannsóknarinnar.

Á fundinn mætti k. 12:30, Ingibjörg Benediktsdóttir frá Þekkingarnetinu og kynnti niðurstöður.
Byggðarráð þakkar Ingibjörgu Benediktsdóttir frá Þekkingarneti Þingeyinga fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

13.Áskorun til yfirvalda íþróttamála og sveitarfélaga

Málsnúmer 202604046Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur áskorun frá KSÍ til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026.

Í áskoruninni er lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.
Byggðarráð tekur undir áskorun Knattspyrnusambands Íslands. Ráðið telur jafnframt að tryggja þurfi raunhæfan og markvissan stuðning við ferðakostnað barna og ungmenna vegna íþróttaiðkunar.
Í skýrslu um úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga má glögglega sjá hvernig ferðakostnaður hefur hækkað og endurgreiðsluhlutfall úr sjóðnum lækkað. Upphæð umsókna hefur hækkað úr 473 m.kr. árið 2018 í 695 m.kr. árið 2024, á sama tíma og greiðslur úr Ferðasjóði íþróttafélaga hafa hins dregist saman um 3 m.kr., voru 127 m.kr. 2018 en 124 m.kr. 2024.

Ráðið hvetur ríkisstjórn Íslands til að ríða á vaðið og hækka nú þegar framlög í Ferðasjóð íþróttafélaga. Með hækkun framlaga í sjóðinn er betur hægt að tryggja jafnræði barna og ungmenna. Jafnframt hvetur byggðarráð ríkistjórn Íslands til að kanna leiðir til að veita íþróttafélögum loftbrúarstuðning til lækkunar á flugfargjöldum fyrir iðkendur og starfsmenn sem fylgja keppnishópum hvert sinn og stuðla þannig að auknu öryggi barna og ungmenna í ferðum vegna æfinga og keppni.

Þátttaka barna og ungmenna í æfingum og keppni á ekki að vera munaður á fárra færi heldur grundvallarþáttur í eflingu lýðheilsu og félagslegrar þátttöku. Búseta barna á Íslandi á heldur ekki að ráða því hvort þau hafi raunhæfa möguleika á að taka þátt í æfingum og keppni, hvort sem er með íþróttafélaginu sínu eða í landsliðsverkefnum sérsambanda.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.

14.Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón

Málsnúmer 202604056Vakta málsnúmer

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 kemur fram að til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent.
Baðlón auka ótvírætt búsetugæði heimafólks í námunda þeirra en hafa fyrst og fremst á undanförnum árum orðið mikilvægur hluti ferðaþjónustu. Þá gegna þau mikilvægu hlutverki í atvinnusköpun og uppbyggingu samfélaga utan höfuðborgarsvæðisins.

Byggðarráð lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón með svo skömmum fyrirvara og áhrifum þeirrar ákvörðunar á ferðaþjónustu og atvinnulíf, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem nánast öll baðlón landsins eru staðsett.

Byggðarráð telur mikilvægt að tryggja stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustu um land allt og skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða tímasetningu á hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.

15.Sveitarfélag ársins 2026

Málsnúmer 202604079Vakta málsnúmer

Mannauðssjóðurinn Hekla er að fara af stað með könnunina Sveitarfélag ársins 2026. Sveitarfélögum er boðið að vera með og lýkur skráningu 24. apríl n.k.
Byggðarráð hafnar þátttöku að þessu sinni.

16.Umsóknarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer 202602034Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni vegna umsóknar frá Leikfélagi Húsavíkur vegna Rocky Horror show sýningu nk. laugardag 25. apríl.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn og hvetur íbúa og gesti til að mæta og taka eitt tíðhnitið enn í tímalausri snilld.

17.Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses.2026

Málsnúmer 202604013Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur aðalfundarboð Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Breiðumýri í Reykjadal, miðvikudaginn 22.apríl 2026 kl. 18:00.
Byggðarráð samþykkir að Bergþór Bjarnason fjármálastjóri fari með umboð Norðurþings á aðalfundinum.

18.Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202604055Vakta málsnúmer

fyrir byggðarráði liggur fundarboð til aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Byggðarráð felur Katrínu Sigurjónsdóttur að sitja fundinn.

19.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf.2026

Málsnúmer 202604071Vakta málsnúmer

Boðað er til aðalfundar Landskerfis bókasafna hf. þriðjudaginn 12. maí kl. 14:00 í Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.

20.Atvinnustefna Íslands - vaxtaplan til 2035

Málsnúmer 202511057Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ný Atvinnustefna Íslands, vaxtarplan til 2035 ásamt aðgerðaáætlun 2026 til 2027.
Lagt fram til kynningar.

21.Sefnumótandi byggðaáætlun

Málsnúmer 202604047Vakta málsnúmer

Vinna er hafin við stefnumótandi byggðaáætlun en innviðaráðherra áætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára haustið 2026.
Lagt fram til kynningar.

22.Fundargerðir stjórnar MMÞ

Málsnúmer 202211106Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnarfundar Menningarmiðstöðvar Þingeyinga sem haldinn var þann 25. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

23.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026

Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Markþings frá 24. mars sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:30.