Fara í efni

Ráðning slökkviliðsstjóra

Málsnúmer 202604052

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 520. fundur - 23.04.2026

Á fundi byggðarráðs 12. mars sl. fól ráðið sveitarstjóra að auglýsa eftir slökkviliðsstjóra.
Umsóknarfrestur rann út 7. apríl sl. Ein umsókn barst frá Henning Þór Aðalmundssyni.
Með fundarboði fylgdu gögn umsækjanda, minnisblað ráðningaráðgjafa um mat á hæfi umsækjanda og greinargerð frá ráðningaviðtali.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að Henning Þór Aðalmundsson verði ráðinn sem slökkviliðsstjóri Norðurþings.

Sveitarstjórn Norðurþings - 163. fundur - 30.04.2026

Á fundi 520. fundi byggðarráðs þann 23. apríl sl. var til umfjöllunar ráðning slökkviliðsstjóra en umsóknarfrestur rann út 7. apríl sl. Eftirfarandi var bókað:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að Henning Þór Aðalmundsson verði ráðinn sem slökkviliðsstjóri Norðurþings.

Með fundarboði til sveitarstjórnar fylgdu gögn umsækjanda, minnisblað ráðningaráðgjafa um mat á hæfi umsækjanda og greinargerð frá ráðningaviðtali. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið þar sem lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrirfram skilgreind viðmið og vægi.

Henning er löggiltur slökkviliðsmaður og hefur starfað við slökkvilið Norðurþings í rúm tuttugu ár, þar af í fullu starfi frá árinu 2017. Hann hefur jafnframt gegnt starfi varaslökkviliðsstjóra í um átta ár og verið settur slökkviliðsstjóri í tæpt ár. Umsóknargögn sýna að hann uppfyllir að fullu bæði lögbundnar kröfur og þá hæfni sem gerð er til starfsins.
Til máls tók: Katrín.

Sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins og samþykkir samhljóða að ráða Henning Þór Aðalmundsson í starf slökkviliðsstjóra Norðurþings.