Fara í efni

Áskorun til yfirvalda íþróttamála og sveitarfélaga

Málsnúmer 202604046

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 520. fundur - 23.04.2026

Fyrir byggðarráði liggur áskorun frá KSÍ til yfirvalda íþróttamála, sveitarfélaga, ÍSÍ og UMFÍ, sem samþykkt var á ársþingi KSÍ sem fram fór á Egilsstöðum þann 28. febrúar 2026.

Í áskoruninni er lýst verulegum áhyggjum af þeirri staðreynd að börn á landsbyggðinni búi við skert jafnrétti til íþróttaiðkunar vegna ferðakostnaðar, vinnutaps foreldra og fjarveru barna frá námi.
Byggðarráð tekur undir áskorun Knattspyrnusambands Íslands. Ráðið telur jafnframt að tryggja þurfi raunhæfan og markvissan stuðning við ferðakostnað barna og ungmenna vegna íþróttaiðkunar.
Í skýrslu um úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga má glögglega sjá hvernig ferðakostnaður hefur hækkað og endurgreiðsluhlutfall úr sjóðnum lækkað. Upphæð umsókna hefur hækkað úr 473 m.kr. árið 2018 í 695 m.kr. árið 2024, á sama tíma og greiðslur úr Ferðasjóði íþróttafélaga hafa hins dregist saman um 3 m.kr., voru 127 m.kr. 2018 en 124 m.kr. 2024.

Ráðið hvetur ríkisstjórn Íslands til að ríða á vaðið og hækka nú þegar framlög í Ferðasjóð íþróttafélaga. Með hækkun framlaga í sjóðinn er betur hægt að tryggja jafnræði barna og ungmenna. Jafnframt hvetur byggðarráð ríkistjórn Íslands til að kanna leiðir til að veita íþróttafélögum loftbrúarstuðning til lækkunar á flugfargjöldum fyrir iðkendur og starfsmenn sem fylgja keppnishópum hvert sinn og stuðla þannig að auknu öryggi barna og ungmenna í ferðum vegna æfinga og keppni.

Þátttaka barna og ungmenna í æfingum og keppni á ekki að vera munaður á fárra færi heldur grundvallarþáttur í eflingu lýðheilsu og félagslegrar þátttöku. Búseta barna á Íslandi á heldur ekki að ráða því hvort þau hafi raunhæfa möguleika á að taka þátt í æfingum og keppni, hvort sem er með íþróttafélaginu sínu eða í landsliðsverkefnum sérsambanda.

Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.