Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón
Málsnúmer 202604056
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 520. fundur - 23.04.2026
Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 kemur fram að til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent.
Byggðarráð lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón með svo skömmum fyrirvara og áhrifum þeirrar ákvörðunar á ferðaþjónustu og atvinnulíf, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem nánast öll baðlón landsins eru staðsett.
Byggðarráð telur mikilvægt að tryggja stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustu um land allt og skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða tímasetningu á hækkun virðisaukaskatts á baðlón.
Sveitarstjóra er falið að koma bókun þessari á framfæri við viðeigandi ráðherra.