Fara í efni

Framlög til reksturs Áfangastaðastofu Norðurlands

Málsnúmer 202505009

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 495. fundur - 15.05.2025

Fyrir byggðarráði liggja drög að endurnýjuðum samningi til þriggja ára á milli SSNE og sveitarfélagsins um framlög til reksturs Áfangastaðastofu Norðurlands.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.

Gjald fyrir þjónustu áfangastaðastofu miðast við íbúafjölda sveitarfélags og er kr. 500,- pr. íbúa og miðast upphæð greiðslu við íbúafjölda 1. desember árið á undan.