Samstarf á þingeyska vísu
Málsnúmer 202505019
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 153. fundur - 08.05.2025
Sveitarfélögum í Þingeyjarsýslu hefur fækkað á undanförnum áratugum. Þau hafa ávallt unnið að sameiginlegum hagsmunamálum héraðsins, keypt þjónustu hvert af öðru og er mikilvægt að ræða samstarf á þingeyska vísu hvernig efla megi héraðið öllum til heilla.
Lagt er til að sveitarstjóra Norðurþings verði falið að bjóða sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum Langanesbyggðar og Þingeyjarsveitar og hreppsnefndar Tjörneshrepps til óformlegs samtals um samstarf sveitarstjórna í Þingeyjarsýslu.

Fyrirliggjandi tillaga er samþykkt samhljóða.