Sveitarstjórn Norðurþings
1.Ársreikningur Norðurþings 2024
Málsnúmer 202412070Vakta málsnúmer
2.Ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings 2024
Málsnúmer 202412071Vakta málsnúmer
Ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings fyrir árið 2024 er samþykktur samhljóða.
3.Samstarf á þingeyska vísu
Málsnúmer 202505019Vakta málsnúmer
Lagt er til að sveitarstjóra Norðurþings verði falið að bjóða sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum Langanesbyggðar og Þingeyjarsveitar og hreppsnefndar Tjörneshrepps til óformlegs samtals um samstarf sveitarstjórna í Þingeyjarsýslu.
Fyrirliggjandi tillaga er samþykkt samhljóða.
4.Sameiginleg yfirlýsing Carbfix hf. og sveitarfélagsins Norðurþings
Málsnúmer 202502034Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Fyrirliggjandi yfirlýsing er samþykkt samhljóða.
5.Þjónustustefna Norðurþings
Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer
Um er að ræða uppfærslu á tveimur atriðum. Annars vegar vegna þess að umhverfis- og loftlagsstefna sveitarfélagsins er tilbúin en í samþykktri stefnu segir að hún sé í vinnslu. Hins vegar varðandi barnaverndarþjónustu en nú er í gildi samningur við Akureyarbæ um að vera leiðandi sveitarfélag þegar kemur að framkvæmd og rekstri barnaverndarþjónustu sem nú heitir Barnaverndarþjónusta á Norðurlandi eystra og er þjónustustefnan uppfærð m.t.t. þess.
6.Afsláttur af gatnagerðagjöldum valdra lóða í Norðurþingi
Málsnúmer 202504024Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum vegna bygginga á eftirfarandi lóðum á Húsavík:
Lyngbrekka 6
Lyngbrekka 8
Lyngbrekka 9
Lyngbrekka 11
Urðargerði 5
Miðist afsláttur við að húsnæði verði fokhelt fyrir lok árs 2028.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
7.Umsókn um lóð að Lyngbrekku 9
Málsnúmer 202503118Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að Sebastian Florczyk verði úthlutað lóðinni að Lyngbrekku 9.
8.Ósk um breytingu deiliskipulags heilbrigðisstofnana á Húsavík
Málsnúmer 202503004Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt eins og hún var kynnt. Skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa gildistöku skipulagsbreytingarinnar.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
9.Skipulagsskrá lista- og menningarsjóðs Norðurþings - endurskoðun 2025
Málsnúmer 202503112Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir reglur skipulagsskrá lista- og menningarsjóðs og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
10.Reglur Norðurþings um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkvæmt lögum nr. 382018
Málsnúmer 202105155Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um frístundarþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni með langvarandi stuðningsþarfir og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
11.Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir
Málsnúmer 202105140Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og ungmenni og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi reglur.
12.Reglur um skammtímadvöl
Málsnúmer 202102004Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
13.Reglur Norðurþings um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Málsnúmer 202101037Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
14.Skipulags- og framkvæmdaráð - 215
Málsnúmer 2503008FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
15.Skipulags- og framkvæmdaráð - 216
Málsnúmer 2504004FVakta málsnúmer
16.Fjölskylduráð - 215
Málsnúmer 2504001FVakta málsnúmer
17.Fjölskylduráð - 216
Málsnúmer 2505001FVakta málsnúmer
18.Byggðarráð Norðurþings - 492
Málsnúmer 2503011FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
19.Byggðarráð Norðurþings - 493
Málsnúmer 2504005FVakta málsnúmer
Hjálmar leggur til að sveitarstjórn gerir bókun byggðarráðs að sinni, bókunin hljóðar svo:
Byggðarráð Norðurþings fagnar framkominni þingsályktunartilögu og telur nauðsynlegt að hún nái fram að ganga.
Byggðarráð tekur undir með Landhelgisgæslu Íslands um að þetta yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Norðurland eystra er stórt og dreifbýlt svæði þar sem oft er um langan veg að fara fyrir næsta sjúkrabíl og/eða að næsta sjúkrahúsi eða flugvelli. Íbúar og gestir hafa þar af leiðandi hingað til ekki haft aðgang að bestu bráðaþjónustu vegna þessara staðbundnu aðstæðna.
Með staðsetningu þyrlu á Akureyri mætti stytta viðbragðstíma sérstaklega á jaðarsvæðum landshlutans, á fjölfarnari svæðum eða leiðum sem ferðamenn heimsækja gjarnan og á hafi úti fyrir Norðurlandi og tryggja þar með bætt aðgengi að enn betri bráðaþjónustu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ofangreinda bókun að sinni.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
20.Byggðarráð Norðurþings - 494
Málsnúmer 2504008FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
21.Orkuveita Húsavíkur ohf - 264
Málsnúmer 2503010FVakta málsnúmer
22.Orkuveita Húsavíkur ohf - 265
Málsnúmer 2504003FVakta málsnúmer
23.Orkuveita Húsavíkur ohf - 266
Málsnúmer 2504006FVakta málsnúmer
24.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 32
Málsnúmer 2504002FVakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 14:45.
Sveitarstjórn leggur fram eftirfarandi bókun:
Niðurstöður ársreiknings Norðurþings vegna ársins 2024 sýna þegar á heildina er litið að reksturinn gekk vel, er í ágætu jafnvægi og fjárhagsstaðan er góð. Engin ný lán voru tekin á árinu en vegna framkvæmda og fjárfestinga var gengið á handbært fé.
Fjárhagsstaða sveitarfélagsins hefur á undanförnum árum farið batnandi sem skilar sér í aukinni getu til að bæta innviði, viðhalda og bæta þjónustu, lækka álögur á íbúa og fyrirtæki án þess að það hafi veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins. Á árinu var fjárfest fyrir 857,6 mkr. Í A og B hluta, þar af námu fjárfestingar eignasjóðs 489,6 mkr. Fjárfestingar eignasjóðs voru án lántöku og jafnframt tókst að lækka skuldir A og B hluta í 5% verðbólgu um 172,2 mkr.
Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagslegt viðmið lækkar úr 65% í 63% hjá samstæðunni.
Fyrir utan gatna- og gangstéttaframkvæmdir á liðnu ári var aðstöðuhús á tjaldsvæði á Húsavík endurnýjað, hönnun og undirbúningur félagsmiðstöðvar og frístundarhúsnæðis, framkvæmdir við skólahúsið á Kópaskeri, Öxarfjarðarskóla og Grunnskóla Raufarhafnar. Áhersla í fjárfestingum og viðhaldi er að færast í auknum mæli á þá innviði sem börn og barnafjölskyldur sveitarfélagsins nýta mest og má sjá það m.a. í framkvæmdaáætlun ársins 2025 þar sem unnið verður að byggingu félagsmiðstöðvar og frístundar og endurnýjunar á gervigrasi.
Hjá Hafnasjóði var fjárfest í flotbryggjum og stálþili á Þvergarði og í veitukerfum og búnaði hjá Orkuveitu Húsavíkur. Nettó söluhagnaður eigna á árinu nam rúmlega 50 mkr.
Þó ársreikningur ársins 2024 sýni góða niðurstöðu, þá er ýmislegt í umhverfi okkar sem hvetur til varfærni í útgjöldum og stöðugrar rýni á framkvæmd þjónustu með tilliti til gæða, skilvirkni og kostnaðar. Nægir þar að nefna stöðu efnahagsmála, heimsmála og nýlega kjarasamninga og blikur á lofti í atvinnumálum.
Undirliggjandi markmið sveitarstjórnar eru alltaf að leitast við að fara betur með fjármuni íbúa við rekstur sveitarfélagsins og útfæra þjónstu með betri hætti.
Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2024 er samþykktur samhljóða.