Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings - 493

Málsnúmer 2504005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 153. fundur - 08.05.2025

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 493. byggðarráðs.
Til máls tók undir lið 11 "Föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri": Hjálmar.

Hjálmar leggur til að sveitarstjórn gerir bókun byggðarráðs að sinni, bókunin hljóðar svo:
Byggðarráð Norðurþings fagnar framkominni þingsályktunartilögu og telur nauðsynlegt að hún nái fram að ganga.
Byggðarráð tekur undir með Landhelgisgæslu Íslands um að þetta yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Norðurland eystra er stórt og dreifbýlt svæði þar sem oft er um langan veg að fara fyrir næsta sjúkrabíl og/eða að næsta sjúkrahúsi eða flugvelli. Íbúar og gestir hafa þar af leiðandi hingað til ekki haft aðgang að bestu bráðaþjónustu vegna þessara staðbundnu aðstæðna.
Með staðsetningu þyrlu á Akureyri mætti stytta viðbragðstíma sérstaklega á jaðarsvæðum landshlutans, á fjölfarnari svæðum eða leiðum sem ferðamenn heimsækja gjarnan og á hafi úti fyrir Norðurlandi og tryggja þar með bætt aðgengi að enn betri bráðaþjónustu.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ofangreinda bókun að sinni.

Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.