Hlutur Orkuveitu Húsavíkur í Sjóböðunnum.
Málsnúmer 202511063
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 271. fundur - 28.11.2025
Fyrir stjórn liggur að taka ákvörðun um að kanna sölumöguleika á hlut félagsins í Sjóböðunum.
Stjórn samþykkir að kanna sölumöguleika á hlut félagsins í Sjóböðunum og veitir stjórnarformanni umboð til að ganga frá fyrirliggjandi ráðgjafasamningi.
Orkuveita Húsavíkur ohf - 277. fundur - 15.05.2026
Á 271. fundi stjórnar Orkuveitu Húsavíkur var ákveðið að kanna sölumöguleika á hlut Orkuveitunnar í Sjóðböðunum. Kaupilboð hefur borist í allan hlut Orkuveitunnar, 13.79%. Fyrir fundinn liggur að stjórn Orkuveitunnar taki afstöðu til tilboðsins.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir fyrirliggjandi tilboð með fyrirvara að ákvæði kaupsamningsins varðandi aðra sölu á hlutum í Sjóböðunum haldi.