Bréf til sveitarstjórnar Norðurþings
Málsnúmer 202602079
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 236. fundur - 24.02.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Birgittu Bjarneyju Svavarsdóttur þar sem lýst er yfir eindregnum mótmælum vegna ákvörðunar um að skerða opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur.
Fjölskylduráð er sammála því sem fram kemur í erindinu að sundlaugin sé mikilvægur innviður sem styður við lýðheilsu, forvarnir og félagsleg gildi. Norðurþing hefur ekki tekið neina ákvörðun um að hætta að vera heilsueflandi samfélag. Hafa ber í huga að það að bjóða uppá þjónustu sundlaugarinnar er einungis einn af mörgum þáttum þess að vera heilsueflandi samfélag. Á tímum þar sem þrengir að í rekstri sveitarfélagsins, er það óhjákvæmilegt að horfa til allra átta og finna misjafnar leiðir til þess að mæta tekjufalli eins og sveitarfélagið upplifir nú. Þrátt fyrir styttri opnunartíma með þessum breytingum er þjónustan ennþá opin fyrir íbúa og gesti okkar í 13 klst á dag á virkum dögum og rúmar 6 klst um helgar. Þjónusta sundlaugarinnar er einungis lokuð 3 daga ársins þ.e. 1.maí, jóladag og og nýársdag.
Við ákvörðun um breyttan opnunartíma var stuðst við mismunandi tillögur m.t.t. mismunandi vaktafyrirkomulags og greiningu á sparnaði við hverja leið. Einnig var stuðst við nýtingartölur í sundlauginni til að meta fjöldann sem að breyttur opnunartími myndi möguleg hafa áhrif á og reynt að aðlaga að því eftir bestu getu.
Ekki stendur til að endurskoða þessa ákvörðun að svo stöddu.