Sveitarstjórn Norðurþings
Dagskrá
1.Ársreikningur Norðurþings 2025
Málsnúmer 202603073Vakta málsnúmer
Á 518.fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð þakkar Hólmgrími frá Deloitte fyrir ítarlega og góða yfirferð á ársreikningi 2025.
Byggðarráð vísar ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

2.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Á 235. fundi skipulags- og framkvæmdarráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún geri tillögu vinnuhóps um aðalskipulagsvinnuna að úrvinnslu athugasemda að sínum sbr. fundargerð ráðsins frá 3. mars s.l. auk viðbótar vegna nýrrar umsagnar Veðurstofunnar.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki aðalskipulagstillöguna með þeim breytingum sem gerðar hafa verið að beiðni ráðsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki einnig fyrirliggjandi kortlagningu vega í náttúru Íslands sem fylgir aðalskipulagstillögunni.

Til máls tók: Soffía.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur skipulags- og framkvæmdaráðs.

3.Grunnskóli Raufarhafnar - starfsemi
Málsnúmer 202510082Vakta málsnúmer
Á 236. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð tekur undir með skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar að mikilvægt sé að skólahúsnæðið sé ennþá aðgengilegt og verði vel við haldið. Ráðið beinir því til skipulags og framkvæmdaráðs að sjá til þess að svo sé gert og reglulegt eftirlit verði með húsnæðinu.
Ráðið tekur einnig undir að mikilvægt sé að mokstur og hálkuvarnir séu í forgangi fyrir akstur skólabarna og beinir því til byggðarráðs að brýna það við Vegagerðina.
Fjölskylduráð harmar þá stöðu sem komin er upp en til að tryggja að hægt sé að uppfylla skólaskyldu grunnskólabarna á Raufarhöfn leggur ráðið til við sveitarstjórn að skólahald á Raufarhöfn verði fært í Grunnskóla Öxarfjarðar.

Til máls tóku: Kristinn og Hjálmar.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu samhljóða.

4.Bréf til sveitarstjórnar Norðurþings
Málsnúmer 202602079Vakta málsnúmer
Á 236. fundi sveitarstjórnar bókaði fjölskylduráð:
Fjölskylduráð þakkar Birgittu fyrir innsent erindi.
Fjölskylduráð er sammála því sem fram kemur í erindinu að sundlaugin sé mikilvægur innviður sem styður við lýðheilsu, forvarnir og félagsleg gildi. Norðurþing hefur ekki tekið neina ákvörðun um að hætta að vera heilsueflandi samfélag. Hafa ber í huga að það að bjóða uppá þjónustu sundlaugarinnar er einungis einn af mörgum þáttum þess að vera heilsueflandi samfélag. Á tímum þar sem þrengir að í rekstri sveitarfélagsins, er það óhjákvæmilegt að horfa til allra átta og finna misjafnar leiðir til þess að mæta tekjufalli eins og sveitarfélagið upplifir nú. Þrátt fyrir styttri opnunartíma með þessum breytingum er þjónustan ennþá opin fyrir íbúa og gesti okkar í 13 klst á dag á virkum dögum og rúmar 6 klst um helgar. Þjónusta sundlaugarinnar er einungis lokuð 3 daga ársins þ.e. 1.maí, jóladag og og nýársdag.
Við ákvörðun um breyttan opnunartíma var stuðst við mismunandi tillögur m.t.t. mismunandi vaktafyrirkomulags og greiningu á sparnaði við hverja leið. Einnig var stuðst við nýtingartölur í sundlauginni til að meta fjöldann sem að breyttur opnunartími myndi möguleg hafa áhrif á og reynt að aðlaga að því eftir bestu getu.
Ekki stendur til að endurskoða þessa ákvörðun að svo stöddu.

Til máls tók: Kristinn.
Lagt fram.
Lagt fram.
5.Tillaga um að endurskoða fjárfestinga og framkvæmdaáætlun 2026- 2029
Málsnúmer 202603044Vakta málsnúmer
Á 518.fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Tillagan er samþykkt með atkvæðum Helenu og Hjálmars, Ingibjörg greiðir atkvæði gegn tillögunni.
Hjálmar og Helena óska bókað:
Sveitarstjórnum ber að tryggja að fjármál sveitarfélaga standist fjárhagsleg viðmið um rekstur sveitarfélaga skv. sveitarstjórnarlögum og reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Norðurþing stendur frammi fyrir kröfum vegna farþegagjalda að upphæð 130 m.kr. Að auki hafa verið greiddar 64 m.kr. vegna dómsmáls í farþegagjaldamálinu. Vegna rekstrarstöðvunar PCC og mikils tekjusamdráttar samhliða henni hefur verið gripið til hagræðingaraðgerða að upphæð 120 m.kr. og áform eru um 130 m.kr. hagræðingu til viðbótar.
Til að tryggja að fjárhagur sveitarfélagsins standist áfram fjárhagsleg viðmið og koma í veg fyrir að sveitarfélagið lendi í fjárþröng og geti ekki staðið skil á afborgunum lána, launum, launatengdum gjöld og öðrum skuldbindingum teljum við ekki annað fært en að fresta tilteknum fjárfestingum sem áformaður voru á árinu 2026 til ársins 2027. Áformuð fjárfesting ársins verður því 410 m.kr. í A - hluta í stað 595 m.kr.
Orkuveita Húsavíkur hyggst áfram framkvæma töluvert mikið og meðal annars að fara í framkvæmdir við Auðbrekku á Húsavík sem kallar á aðkomu jarðvinnuverktaka. Framkvæmdir hefjast senn við nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík og Suðurgarð í Húsavíkurhöfn auk þess er sveitarfélagið í sinni stærstu framkvæmd síðari ára með byggingu félagsmiðstöðvar og frístundahúsnæðis við Borgarhólsskóla sem afhent verður við upphaf næsta skólaárs.
Með því að samþykkja þessa tillögu leggjum við okkar af mörkum til að tryggja það að rekstur Norðurþings verði sjálfbær og að sveitarstjórn Norðurþings haldi forræði á fjárhag sveitarfélagsins.
Áki óskar bókað: Áki leggur áherslu á að framkvæmdum við Ketilsbraut 7-9, Stjórnsýsluhús að upphæð 45 m.kr verði haldið á framkvæmdaáætlun 2026 til að verja húsið fyrir skemmdum.
Ingibjörg tekur undir bókun Áka.

Til máls tóku: Hjálmar, Helena, Aldey, Áki, Eiður, Soffía og Kristinn.
Undirrituð lýsa yfir andstöðu við að fresta framkvæmdum sem snúa að börnum og fjölskyldum í sveitarfélaginu. Þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu er mikilvægt að forgangsraða þannig að ekki sé dregið úr uppbyggingu og aðstöðu sem hefur bein áhrif á velferð, heilsu og félagsþátttöku barna og ungmenna. Slíkar framkvæmdir eru langtímafjárfesting í samfélaginu og lykilþáttur í að viðhalda aðdráttarafli sveitarfélagsins.
Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga áhrif frestunar framkvæmda á atvinnu verktaka á svæðinu, þar sem samdráttur í verkefnum getur haft neikvæð áhrif á atvinnustig og atvinnulíf í sveitarfélaginu. Undirrituð leggja einnig áherslu á að frestun viðhaldsframkvæmda, svo sem við stjórnsýsluhúsið að Ketilsbraut 7 til 9, getur leitt til frekari skemmda og aukins kostnaðar síðar.
Undirrituð telja því að leita eigi annarra leiða til hagræðingar sem bitna síður á barnafjölskyldum, innviðum og atvinnulífi í sveitarfélaginu.
Aldey Unnar Traustadóttir, Áki Hauksson, Benóný Valur Jakobsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Fyrirliggjandi tillaga Hjálmars og Helenu samþykkt með atkvæðum Helenu, Eiðs, Kristins, Soffíu og Hjálmars.
Aldey, Ingibjörg og Áki greiða atkvæði gegn tillögunni.
Benóný situr hjá.

6.Endurskoðun samþykktar um gatnagerðargjöld o.fl.gjöld.
Málsnúmer 202502039Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu samþykkt um gatnagerðargjöld o.fl. sem fékk fyrri umræðu þann 19. febrúar sl.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
7.Endurskoðun samþykktar um sorphirðu
Málsnúmer 202505027Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu endurskoðun samþykktar um sorphirðu.
Heilbrigðisnefnd norðurlands eystra hefur tekið fyrir á fundi sínum samþykkt um sorphirðu og var eftirfarandi bókað:
Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar í samræmi við 2. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Heilbrigðisnefnd norðurlands eystra hefur tekið fyrir á fundi sínum samþykkt um sorphirðu og var eftirfarandi bókað:
Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar í samræmi við 2. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
8.Endurskoðun reglna um lista- og menningarsjóð
Málsnúmer 202603015Vakta málsnúmer
Á 237. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um lista- og menningarsjóð og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.

Fyrirliggjandi reglur samþykktar samhljóða.
9.Ósk um stofnun tveggja frístundalóða í landi Þrastarlundar
Málsnúmer 202603048Vakta málsnúmer
Á 235. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðanna tveggja verði samþykkt.

Fyrirliggjandi tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt samhljóða.
10.Húsavík Harbour Apartments ehf. óskar lóðarstækkunar við Hafnarstétt 17
Málsnúmer 202603054Vakta málsnúmer
Á 235. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarhafa verði veitt umbeðin lóðarstækkun skv. fyrirliggjandi lóðarblaði.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarhafa verði veitt umbeðin lóðarstækkun skv. fyrirliggjandi lóðarblaði.
Til máls tók: Soffía.
Fyrirliggjandi tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt samhljóða.
Fyrirliggjandi tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt samhljóða.
11.Fjölskylduráð - 236
Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 236. fundar fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar.
12.Fjölskylduráð - 237
Málsnúmer 2602009FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 237. fundar fjölskylduráðs.
Til máls tók undir lið 7 "Samkomulag um hreyfiverkefni - endurnýjun": Kristinn og Helena.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.

13.Fjölskylduráð - 238
Málsnúmer 2603005FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 238. fundar fjölskylduráðs.
Til máls tók undir lið 5 "Sumarfrístund á Húsavík 2026": Helena.
Til máls tók undir lið 6 "Bréf vegna sumarvinnu fatlaðra unglinga 16 til 18 ára": Kristinn.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Til máls tók undir lið 6 "Bréf vegna sumarvinnu fatlaðra unglinga 16 til 18 ára": Kristinn.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
14.Skipulags- og framkvæmdaráð - 234
Málsnúmer 2602006FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 234. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Lagt fram til kynningar.
15.Skipulags- og framkvæmdaráð - 235
Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 235. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Til máls tók undir lið 4 "Umsókn um stöðuleyfi fyrir búnað": Helena.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
16.Byggðarráð Norðurþings - 516
Málsnúmer 2602007FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 516. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.
17.Byggðarráð Norðurþings - 517
Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 517. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.
18.Byggðarráð Norðurþings - 518
Málsnúmer 2603006FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 518. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.
19.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 41
Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 41. fundar stjórnar hafnasjóðs Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.
20.Orkuveita Húsavíkur ohf - 274
Málsnúmer 2602008FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 274. fundar Orkuveitu Húsavíkur.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 16:45.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikning fyrir árið 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn.