Ósk um stofnun tveggja frístundalóða í landi Þrastarlundar
Málsnúmer 202603048
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 235. fundur - 17.03.2026
Eigendur jarðarinnar Ærlækjar í Öxarfirði óska samþykki fyrir stofnun tveggja frístundahúsalóða á frístundahúsasvæðinu Þrastarlundi í landi Ærlækjar. Um er að ræða lóðirnar nr. 6 og 8 við Rjúpnalund. Lóðirnar eru í samræmi við samþykkt deiliskipulag Þrastarlundar frá árinu 2000. Erindi fylgja merkjalýsingar beggja lóða unnar af Margréti Hjálmarsdóttur.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðanna tveggja verði samþykkt.