Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Frágangur Krókalágsnámu
Málsnúmer 202603065Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði samning við Vinnuvélar Eyþórs ehf. um notkun og frágang á Krókalágsnámu sunnan Húsavíkur.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur sviðsstjóra að semja við Vinnuvélar Eyþórs ehf.
2.Leigusamningur um geymsluhúsnæði
Málsnúmer 202603058Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur til kynningar húsaleigusamningur um Lýsishúsið á SR reitnum á Raufarhöfn.
Samningurinn gerir ráð fyrir að leigutaki, AG verk ehf., hafi húsnæðið á leigu til næstu 5 ára.
Samningurinn gerir ráð fyrir að leigutaki, AG verk ehf., hafi húsnæðið á leigu til næstu 5 ára.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ljúka við gerð samningsins við A.G. verk ehf.
3.Aðalbraut 23, Ráðhúsið á Raufarhöfn - styrkur frá uppbyggingarsjóði
Málsnúmer 202603066Vakta málsnúmer
Norðurþing hefur fengið vilyrði fyrir styrk að fjárhæð kr. 10.000.000,- úr C.1. sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Um er að ræða styrk vegna áframhaldandi framkvæmda verkefnisins "Ráðhúsið á Raufarhöfn, atvinnu- og samfélagssetur". Sveitarfélagið hafði áður fengið styrk að fjárhæð kr. 8.000.000,- vegna framkvæmda árið 2025.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að aðlaga verkefnið að úthlutaðri styrkfjárhæð og leggja fyrir ráðið að nýju.
4.Umsókn um stöðuleyfi fyrir búnað
Málsnúmer 202603076Vakta málsnúmer
Syntholene Energy Iceland ehf óskar stöðuleyfis fyrir þrjá 20 feta gáma, starfsmannahús, 6 feta tengigáms og sex hráefnatunna á lóðinni Hrísmóum 2b. Með erindi fylgir afstöðumynd fyrirhugaðs búnaðar. Fyrir liggur samþykki stjórnar Orkuveitu Húsavíkur fyrir þessum afnotum lóðarinnar. Ennfremur liggur fyrir umsögn eldvarnareftirlits sem gerir ekki athugasemdir við að stöðuleyfið verði veitt.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir þessum búnaði til loka mars 2027 að því tilskyldu að formlegu samþykki lóðarhafa verði skilað inn til skipulags- og byggingarfulltrúa.
5.Ósk um stofnun tveggja frístundalóða í landi Þrastarlundar
Málsnúmer 202603048Vakta málsnúmer
Eigendur jarðarinnar Ærlækjar í Öxarfirði óska samþykki fyrir stofnun tveggja frístundahúsalóða á frístundahúsasvæðinu Þrastarlundi í landi Ærlækjar. Um er að ræða lóðirnar nr. 6 og 8 við Rjúpnalund. Lóðirnar eru í samræmi við samþykkt deiliskipulag Þrastarlundar frá árinu 2000. Erindi fylgja merkjalýsingar beggja lóða unnar af Margréti Hjálmarsdóttur.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðanna tveggja verði samþykkt.
6.Húsavík Harbour Apartments ehf. óskar lóðarstækkunar við Hafnarstétt 17
Málsnúmer 202603054Vakta málsnúmer
Húsavík Harbour Apartments ehf. óskar lóðarstækkunar við Hafnarstétt 17 á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs sem kynnt var á fundi ráðsins 10. febrúar s.l. Í erindi kemur fram að horft sé til þess að hefja framkvæmdir við endurbætur hússins haustið 2026, en forsenda til að svo verði er að gengið verði frá lóðarsamningi eins fljótt og unnt er.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarhafa verði veitt umbeðin lóðarstækkun skv. fyrirliggjandi lóðarblaði.
7.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Komin er umsögn frá Veðurstofu Íslands, dags. 16. mars 2026, vegna endurskoðunar aðalskipulags Norðurþings. Umsögnin felur f.o.f. í sér ábendingar um leiðréttingar á texta greinargerðar.
Einnig liggur fyrir umsögn Náttúruverndarstofnunar vegna kortlagningar vega í náttúru Íslands innan friðlýstra svæða, dags. 13. mars 2026. Stofnunin samþykkir kortlagningu sveitarfélagsins en óskar samráðs við sveitarfélagið og landeigendur með það að markmiði að stytta vegslóða að Hafragilsfossi og færa bílastæði nær þjóðvegi en nú er.
Samantekt á umsögnum vegna kynningar aðalskipulagstillögunnar og úrvinnsla þeirra hefur verið uppfærð til samræmis við ný gögn.
Skipulagsráðgjafi hefur uppfært aðalskipulagstillögunna til samræmis við bókun skipulags- og framkvæmdaráðs frá 3. mars s.l. með síðari viðbótum.
Fyrir fundi liggur því til afgreiðslu fullbúin tillaga að aðalskipulagi Norðurþings 2025-2045.

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún geri tillögu vinnuhóps um aðalskipulagsvinnuna að úrvinnslu athugasemda að sínum sbr. fundargerð ráðsins frá 3. mars s.l. auk viðbótar vegna nýrrar umsagnar Veðurstofunnar.
Ráðið leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki aðalskipulagstillöguna með þeim breytingum sem gerðar hafa verið að beiðni ráðsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki einnig fyrirliggjandi kortlagningu vega í náttúru Íslands sem fylgir aðalskipulagstillögunni.

Fundi slitið - kl. 14:20.