Fara í efni

Húsavík Harbour Apartments ehf. óskar lóðarstækkunar við Hafnarstétt 17

Málsnúmer 202603054

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 235. fundur - 17.03.2026

Húsavík Harbour Apartments ehf. óskar lóðarstækkunar við Hafnarstétt 17 á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs sem kynnt var á fundi ráðsins 10. febrúar s.l. Í erindi kemur fram að horft sé til þess að hefja framkvæmdir við endurbætur hússins haustið 2026, en forsenda til að svo verði er að gengið verði frá lóðarsamningi eins fljótt og unnt er.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarhafa verði veitt umbeðin lóðarstækkun skv. fyrirliggjandi lóðarblaði.