Aðalbraut 23, Ráðhúsið á Raufarhöfn - styrkur frá uppbyggingarsjóði
Málsnúmer 202603066
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 235. fundur - 17.03.2026
Norðurþing hefur fengið vilyrði fyrir styrk að fjárhæð kr. 10.000.000,- úr C.1. sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Um er að ræða styrk vegna áframhaldandi framkvæmda verkefnisins "Ráðhúsið á Raufarhöfn, atvinnu- og samfélagssetur". Sveitarfélagið hafði áður fengið styrk að fjárhæð kr. 8.000.000,- vegna framkvæmda árið 2025.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að aðlaga verkefnið að úthlutaðri styrkfjárhæð og leggja fyrir ráðið að nýju.