Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Gatnaframkvæmdir 2026
Málsnúmer 202604064Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráð tillögur að viðhaldi gatna í sumar.
Með vísan til minnisblaðs sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs dags. 21. apríl 2026 felur skipulags- og framkvæmdaráð sviðsstjóra að fylgja eftir áætlun um viðhald gatna og gangstétta í sveitarfélaginu.
2.Götumálun í Norðurþingi
Málsnúmer 202604066Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri kynnti tillögu framkvæmdasviðs að breyttu fyrirkomulagi við götumálun í sveitarfélaginu.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að götumálun.
Til að ná fram sparnaði í götumálun leggur sviðsstjóri til að miðlínur verði ekki málaðar í íbúðargötum og horfið verði frá því að mála 3/1 (3 mtr af málningu og 1 mtr ómálaður) og farið í 1/3 (1 mtr af málningu og 3 ómálaðir).
Tillögur þessar eru í samræmi við það sem þekkist í öðrum sveitarfélögum og er heimilt skv. umferðarlögum. Töluverður sparnaður næst fram með því að fara þessa leið. Auk þess er það umhverfisvænt og dregur úr óþarfa efnisnotkun.
Til að ná fram sparnaði í götumálun leggur sviðsstjóri til að miðlínur verði ekki málaðar í íbúðargötum og horfið verði frá því að mála 3/1 (3 mtr af málningu og 1 mtr ómálaður) og farið í 1/3 (1 mtr af málningu og 3 ómálaðir).
Tillögur þessar eru í samræmi við það sem þekkist í öðrum sveitarfélögum og er heimilt skv. umferðarlögum. Töluverður sparnaður næst fram með því að fara þessa leið. Auk þess er það umhverfisvænt og dregur úr óþarfa efnisnotkun.
3.Samningur um refaveiðar grenjaveiðar 2026
Málsnúmer 202604058Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs lagði fram drög að samningum við refaveiðimenn um grenjaveiðar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningum. Samningarnir eru alls 10 talsins og eru 5 gerðir til þriggja ára, og 5 til eins árs. Samningarnir eru með sama sniði og sl. ár og fela í sér fasta upphæð fyrir leit og grenjavinnslu. Upphæðin hefur verið óbreytt frá 2024.
4.Ályktun frá skólaráði og stjórn foreldrafélags Öxarfjarðarskóla
Málsnúmer 202603141Vakta málsnúmer
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að sjá til þess að skólasund geti farið fram í sundlauginni í Lundi haustið 2026.
5.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2022-2026
Málsnúmer 202208006Vakta málsnúmer
Á 239. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð vísar þeim hlutum greinargerðarinnar sem snúa að aðgengis og uppbyggingarmálum til skipulags- og framkvæmdaráðs. Greinargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Fjölskylduráð vísar þeim hlutum greinargerðarinnar sem snúa að aðgengis og uppbyggingarmálum til skipulags- og framkvæmdaráðs. Greinargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Notendaráði fatlaðs fólks í Norðurþingi fyrir ítarlega og góða greinargerð. Ráðið vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.
6.Aðalbraut 23, Ráðhúsið á Raufarhöfn - styrkur frá uppbyggingarsjóði
Málsnúmer 202603066Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur kostnaðaráætlun vegna úthlutunnar á styrkfjárhæð vegna verkefnisins "Ráðhúsið á Raufarhöfn".
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi kostnaðaráætlun vegna mótframlags sveitarfélagsins við framkvæmdir á verkefninu "Ráðhúsið á Raufarhöfn".
7.Ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands
Málsnúmer 202603148Vakta málsnúmer
Fyrir liggur bréf frá Skógræktarfélagi Íslands sem innheldur ályktun fulltrúafundar 28. mars um íþyngjandi kröfur til skógræktar vegna breytts viðmiðunarflatarmál tilkynningarskyldu skógræktar.
Bréf lagt fram.
8.Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu nýrrar vatnsveitu Stóragarði
Málsnúmer 202604059Vakta málsnúmer
Orkuveita Húsavíkur óskar leyfis Norðurþings til að leggja nýja vatnsveitulögn við Stóragarð á Húsavík. Aðgerðin er liður í að bæta afhendingaröryggi á köldu neysluvatni í bænum. Horft er til framkvæmda frá því í seinnihluta maí til loka ágúst nú í sumar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framkvæmdina og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Frágangur í lok framkvæmdatíma verði unninn í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
9.Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu nýrrar regnvatnslagnar í Auðbrekku
Málsnúmer 202604060Vakta málsnúmer
Orkvueita Húsavíkur óskar leyfis til að leggja nýja regnvatnslögn við Auðbrekku á Húsavík. Með erindi fylgir rissmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar frá seinnihluta aprílmánaðar til loka júlí.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framkvæmdina og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Frágangur í lok framkvæmdatíma verði unninn í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
10.Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun fráveitu Raufarhöfn
Málsnúmer 202604061Vakta málsnúmer
Orkuveita Húsavíkur óskar eftir leyfi til að endurnýja fráveitu frá Aðalbraut að Framnesvegi á Raufarhöfn. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Verktími er áætlaður frá byrjun maí til loka júlí.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framkvæmdina og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Frágangur í lok framkvæmdatíma verði unninn í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
11.Ósk um afmörkun lóðar á Kaldbakshöfða
Málsnúmer 202604025Vakta málsnúmer
Uggi fiskverkun ehf óskar eftir að skilgreind verði lóð utan um húseign fyrirtækisins á Kaldbakshöfða. Húsið hefur staðið þar á stöðuleyfi um áratugi.
Meirihluti skipulags- og framkvæmdaráðs, Soffía, Ingibjörg og Rebekka, fellst ekki á að skilgreina lóð undir húsið á þessu stigi. Húsið stendur á óskipulögðu opnu svæði skv. gildandi aðalskipulagi.
Eiður og Þorsteinn telja rétt að veita Ugga ehf. lóð undir húsið.
Eiður og Þorsteinn telja rétt að veita Ugga ehf. lóð undir húsið.
12.Erindi frá Veitingahúsinu Setbergi ehf.
Málsnúmer 202603110Vakta málsnúmer
Veitinghúsið Setberg ehf óskar endurupptöku máls nr. 202209045 þar sem fyrirtækinu var synjað um samþykki fyrir lóðarstækkun til suðurs til að tryggja bílastæði fyrir starfsemi í húsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst ekki á að veita Setbergi umbeðna lóðarstækkun. Umrædd bílastæði eru almenn sem m.a. nýtast viðskiptavinum ýmissrar starfsemi á svæðinu.
Þorsteinn vék af fundi undir málinu.
Þorsteinn vék af fundi undir málinu.
13.Umsókn um lóðina Auðbrekka 2, Húsavík
Málsnúmer 202604037Vakta málsnúmer
Rafklettur ehf óskar eftir úthlutun lóðarinnar að Auðbrekku 2 til uppbyggingar hjúkrunarheimilis. Fyrir fundi liggur lóðarblað skv. gildandi deiliskipulagi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að Rafkletti ehf. verði úthlutað byggingarlóðinni að Auðbrekku 2 skv. fyrirliggjandi lóðarblaði.
14.Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsnæði að Núpi 1
Málsnúmer 202604048Vakta málsnúmer
Guðmundur Sigurpáll Ólafsson og Olga Gísladóttir óska byggingarleyfis fyrir íbúðarhúsi og bílskúr á lóð sinni að Núpi 1 í Öxarfirði. Fyrir fundi liggja teikningar unnar af Birni Sveinssyni byggingartæknifræðingi. Húsið er alls 375,9 m² að flatarmáli, þar af 173,4 m² íbúð og 202,5 m² bílskúr. Húsið verður byggt úr steinsteyptum einingum. Fyrir liggur skriflegt samþykki næstu nágranna að Núpi 2. Einnig liggur fyrir umsögn Minjastofnunar, dags. 21. apríl 2026, þar sem fram kemur að ekki séu þekktar fornleifar á fyrirhuguðu byggingarsvæði. Stofnunin gerir því ekki athugasemdir við að leyfi verði veitt til framkvæmdanna.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á fyrirhugaða uppbyggingu og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi liggja fyrir.
15.Umsókn um lóðarstækkun og breytingu á gangstétt við Garðarsbraut 27
Málsnúmer 202604069Vakta málsnúmer
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi óskar lóðarstækkunar við Garðarsbraut 27 og heimildar til að breyta gangstétt framan við húsið. Fyrir liggur rissmynd af óskaðri lóðarstækkun.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að láta vinna lóðarblað með þeirri lóðarstækkun sem beðið er um. Gera verður fyrirvara um umferðarrétt Rarik um lóðina vegna spennistöðvar sem í húsinu er. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að lóðarstækkunin verði samþykkt.
Fundi slitið - kl. 15:30.