Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu nýrrar vatnsveitu Stóragarði
Málsnúmer 202604059
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 237. fundur - 21.04.2026
Orkuveita Húsavíkur óskar leyfis Norðurþings til að leggja nýja vatnsveitulögn við Stóragarð á Húsavík. Aðgerðin er liður í að bæta afhendingaröryggi á köldu neysluvatni í bænum. Horft er til framkvæmda frá því í seinnihluta maí til loka ágúst nú í sumar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framkvæmdina og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Frágangur í lok framkvæmdatíma verði unninn í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.