Fara í efni

Fjölskylduráð

236. fundur 24. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Kristinn Jóhann Lund formaður
  • Alexander Gunnar Jónasson varaformaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir aðalmaður
  • Hanna Jóna Stefánsdóttir aðalmaður
  • Jónas Þór Viðarsson aðalmaður
  • Ísak Már Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Höskuldsson sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Ólöf Rún Pétursdóttir fjölmenningarfulltrúi
  • Lára Björg Friðriksdóttir félagsmálastjóri
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Birna Björnsdóttir, fulltrúi foreldra Grunnskóla Raufarhafnar, sat fundinn undir lið 1.

Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, Steinunn Jónsdóttir og Daniel Annisius, fulltrúar foreldraráðs sátu fundinn undir liðum 2 - 4.

Dagný Þóra Gylfadóttir, yfirmatráður skólamötuneytis Norðurþings, sat fundinn undir lið 3.

Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 6 og 7.

Ólöf Rún Pétursdóttir, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 7 - 11.

Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 12 og 13.

1.Grunnskóli Raufarhafnar - starfsemi

Málsnúmer 202510082Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsögn skólaráðs Grunnskóla Raufarhafnar.
Fjölskylduráð tekur undir með skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar að mikilvægt sé að skólahúsnæðið sé ennþá aðgengilegt og verði vel við haldið. Ráðið beinir því til skipulags og framkvæmdaráðs að sjá til þess að svo sé gert og reglulegt eftirlit verði með húsnæðinu.

Ráðið tekur einnig undir að mikilvægt sé að mokstur og hálkuvarnir séu í forgangi fyrir akstur skólabarna og beinir því til byggðarráðs að brýna það við Vegagerðina.

Fjölskylduráð harmar þá stöðu sem komin er upp en til að tryggja að hægt sé að uppfylla skólaskyldu grunnskólabarna á Raufarhöfn leggur ráðið til við sveitarstjórn að skólahald á Raufarhöfn verði fært í Grunnskóla Öxarfjarðar.

2.Borgarhólsskóli - Ósk um breytingu á skóladagatali.

Málsnúmer 202602003Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar ósk Borgarhólsskóla um breytingu á skóladagatali.
Fjölskylduráð samþykkir ósk um breytingu á skóladagatali 2025-2026.

Breytingin er svohljóðandi:

Skertur skóladagur er á dagatali 6.maí og skólaslit mánudaginn 8.júní sem einnig er skertur dagur.

Óskin er að hafa 6.maí sem fullan dag og ljúka þá skóla föstudaginn 5.júní.

3.Borgarhólsskóli - Morgunverður nemenda.

Málsnúmer 202411073Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar könnun sem gerð var meðal foreldra í Borgarhólsskóla varðandi morgunverð nemenda í skólanum.
Miðað við niðurstöður könnunarinnar sem lögð var fyrir eru yfir 70% foreldra ánægð með morgunverð í Borgarhólsskóla.
Fjölskylduráð mun hafa til umfjöllunar á næsta fundi ráðsins hvernig fyrirkomulagi morgunverðar verði háttað næsta skólaár.

4.Borgarhólsskóli - Nemendakönnun Skólapúlsins

Málsnúmer 202602081Vakta málsnúmer

Nemendakönnun Borgarhólsskóla lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

5.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202602075Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

6.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2022-2026

Málsnúmer 202208006Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur 8. fundargerð Notendaráðs fatlaðs fólks í Norðurþingi til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

7.Litaland - Sýning Leikhópsins Lottu á Húsavík

Málsnúmer 202602074Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur beiðni um ferða- og gististyrk frá Leikhópnum Lottu. Þau hyggjast sýna leikritið Litaland á Mærudögum.
Einnig óskar Leikhópurinn eftir endurgjaldslausum afnotum af íþróttahöllinni ef veður verður slæmt.
Fjölskylduráð samþykkir 250.000 kr. styrk og endurgjaldslaus afnot af íþróttahöllinni ef veður verður slæmt.

8.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202602054Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð Norðurþings. Pamela de Sensi sækir um 100.000kr styrk til að halda 4 tónleika á Húsavík. Tónleikarnir eru partur af tónlistarhátíðinni WindWorks í Norðri 2026 sem fer fram í ágúst.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.

9.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202602041Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð Norðurþings. Gjóla ehf sækir um 50.000kr styrk vegna sýningar á nýrri mynd: "Frá ómi til hljóms". Það stendur til að sýna myndina á árlegu landsmóti Landssamtaka félaga kvæðimanna.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 50.000 kr.

10.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202602076Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð Norðurþings. Þóra Soffía Gylfadóttir sækir um 100.000kr styrk vegna verkefnisins "Litla tunnan stóra". Verkefnið felst í gerð teiknimyndar um síldarárin á Raufarhöfn.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið að upphæð 100.000 kr.

11.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202602078Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð Norðurþings. Þorgeir Brimir Harðarson sækir um 500.000kr. styrk til að halda útgáfutónleika á Raufarhöfn.
Fjölskylduráð hafnar umsókninni en hvetur umsækjanda til að sækja um aftur þegar verkefnið er fullmótað.

12.Samkomulag um hreyfiverkefni - endurnýjun

Málsnúmer 202512059Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir drög að samningi við Íþróttafélagið Þingeying
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra velferðarsviðs að ganga frá samningi við íþróttafélagið Þingeying.

13.Bréf til sveitarstjórnar Norðurþings

Málsnúmer 202602079Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Birgittu Bjarneyju Svavarsdóttur þar sem lýst er yfir eindregnum mótmælum vegna ákvörðunar um að skerða opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur.
Fjölskylduráð þakkar Birgittu fyrir innsent erindi.

Fjölskylduráð er sammála því sem fram kemur í erindinu að sundlaugin sé mikilvægur innviður sem styður við lýðheilsu, forvarnir og félagsleg gildi. Norðurþing hefur ekki tekið neina ákvörðun um að hætta að vera heilsueflandi samfélag. Hafa ber í huga að það að bjóða uppá þjónustu sundlaugarinnar er einungis einn af mörgum þáttum þess að vera heilsueflandi samfélag. Á tímum þar sem þrengir að í rekstri sveitarfélagsins, er það óhjákvæmilegt að horfa til allra átta og finna misjafnar leiðir til þess að mæta tekjufalli eins og sveitarfélagið upplifir nú. Þrátt fyrir styttri opnunartíma með þessum breytingum er þjónustan ennþá opin fyrir íbúa og gesti okkar í 13 klst á dag á virkum dögum og rúmar 6 klst um helgar. Þjónusta sundlaugarinnar er einungis lokuð 3 daga ársins þ.e. 1.maí, jóladag og og nýársdag.

Við ákvörðun um breyttan opnunartíma var stuðst við mismunandi tillögur m.t.t. mismunandi vaktafyrirkomulags og greiningu á sparnaði við hverja leið. Einnig var stuðst við nýtingartölur í sundlauginni til að meta fjöldann sem að breyttur opnunartími myndi möguleg hafa áhrif á og reynt að aðlaga að því eftir bestu getu.

Ekki stendur til að endurskoða þessa ákvörðun að svo stöddu.

Fundi slitið - kl. 10:30.