Umsókn um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi við Hótel Skúlagarð í Kelduhverfi
Málsnúmer 202602087
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 234. fundur - 03.03.2026
Fógeti ehf óskar eftir leyfi til að reisa 31,7 m² gróðurhús á lóð Hótels Skúlagarðs. Fyrir liggur rissmynd af húsinu sem byggt verður út timbri á steyptum sökkli. Veggir og þak klædd með ylplasti. Afstaða hússins er sýnd í erindi.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir gróðurhúsinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.