Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Grunnskóli Raufarhafnar - starfsemi
Málsnúmer 202510082Vakta málsnúmer
Á 236. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð tekur undir með skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar að mikilvægt sé að skólahúsnæðið sé ennþá aðgengilegt og verði vel við haldið. Ráðið beinir því til skipulags og framkvæmdaráðs að sjá til þess að svo sé gert og reglulegt eftirlit verði með húsnæðinu.
Ráðið tekur einnig undir að mikilvægt sé að mokstur og hálkuvarnir séu í forgangi fyrir akstur skólabarna og beinir því til byggðarráðs að brýna það við Vegagerðina.
Fjölskylduráð harmar þá stöðu sem komin er upp en til að tryggja að hægt sé að uppfylla skólaskyldu grunnskólabarna á Raufarhöfn leggur ráðið til við sveitarstjórn að skólahald á Raufarhöfn verði fært í Grunnskóla Öxarfjarðar.

2.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026
Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer
Á 516.fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Lagt fram til kynningar.
Umsögn Hverfisráðs vegna mögulegs vindorkuvers á Hólaheiði er þegar til umsagnar vegna aðalskipulags Norðurþings.
Erindi nr. 3 Vegurinn upp á Höfða: Vísað til skipulags og- framkvæmdaráðs.
Erindum nr. 4 og 5: Vísað til Orkuveitu Húsavíkur.

Nú þegar hefur verið óskað eftir fjárframlagi til úrbóta á umræddum vegarkafla, þ.e. frá Raufarhafnarkirkju upp að Raufarhafnarvita. Erindið miðar að því að tryggja fjármagn til að keyra efni í veginn og bæta ástand hans, með það að markmiði að auka öryggi, bæta aðgengi og efla upplifun gesta og íbúa.
Málið er því þegar komið í farveg og verður fylgt eftir þegar afgreiðsla liggur fyrir.
Málið er því þegar komið í farveg og verður fylgt eftir þegar afgreiðsla liggur fyrir.
3.Skrúðgarðurinn á Húsavík 2026
Málsnúmer 202602098Vakta málsnúmer
Fyrir ráðinu liggur bréf frá Hans E. Storheim sem inniheldur hugmyndir fyrir Skrúðgarðinn á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Hans E. Storheim fyrir erindið en þar koma fram ýmsar hugmyndir varðandi framtíð Skrúðgarðsins. Hans hefur látið af störfum sem sumarstarfsmaður til 7 ára í Skrúðgarðinum á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð notar tækifærið og þakkar Hans fyrir vel unnin störf í Skrúðgarðinum við umhirðu og snyrtingu sl. ár.
Skipulags- og framkvæmdaráð notar tækifærið og þakkar Hans fyrir vel unnin störf í Skrúðgarðinum við umhirðu og snyrtingu sl. ár.
4.Circle of LIFE - stuðningur við verkefni um bætta úrgangsmeðhöndlun
Málsnúmer 202602096Vakta málsnúmer
Umhverfis- og orkustofnun leitar eftir stuðningi sveitarfélaga við LIFE verkefni á vegum Evróusambandsins sem varðar innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs skrifi undir stuðningsyfirlýsingu (Letter of support) enda felur það ekki í sér neina fjárhagslegar skuldbindingar en Norðurþing mun taka þátt í hagaðilasamtali í tengslum við verkefnið.
5.Umsagnarbeiðni frá Langanesbyggð vegna vinnslutillögu breytingar aðalskipulag vegna Tunguárvirkjunar í Þistilfirði
Málsnúmer 202602047Vakta málsnúmer
Langanesbyggð óskar umsagnar Norðurþings inni á Skipulagsgátt vegna tillögu á vinnslustigi að breytingu aðalskipulags Langanesbyggðar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar Tunguárvirkjunar í Þistilfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur ekki athugasemdir við fyrirliggjandi vinnslutillögu að breytingu aðalskipulags.
6.Umsagnarbeiðni frá Langanesbyggð v. vinnslutillögu nýs deiliskipulags Tunguárvirkjunar í Þistilfirði
Málsnúmer 202602048Vakta málsnúmer
Langanesbyggð óskar umsagnar Norðurþings inni á Skipulagsgátt vegna tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrirhugaðrar uppbyggingar Tunguárvirkjunar í Þistilfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur ekki athugasemdir við fyrirliggjandi vinnslutillögu að deiliskipulagi vegna Tunguárvirkjunar.
7.Umsókn um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi við Hótel Skúlagarð í Kelduhverfi
Málsnúmer 202602087Vakta málsnúmer
Fógeti ehf óskar eftir leyfi til að reisa 31,7 m² gróðurhús á lóð Hótels Skúlagarðs. Fyrir liggur rissmynd af húsinu sem byggt verður út timbri á steyptum sökkli. Veggir og þak klædd með ylplasti. Afstaða hússins er sýnd í erindi.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir gróðurhúsinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.
8.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Nú liggur fyrir tillaga vinnuhóps aðalskipulagsins um úrvinnslu athugasemda sem bárust við kynningu aðalskipulagstillögu. Að auki eru lagðar fram til kynningar fundargerðir tveggja síðustu funda vinnuhópsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir tillögur vinnuhópsins að sínum og felur skipulagsfulltrúa að fá skipulagsráðgjafa til að ganga frá skipulagstillögunni til samræmis við tillögu vinnuhópsins fyrir næsta fund.
9.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3.áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Fyrir liggur tillaga að skipulagslýsingu fyrir 3. áfanga deiliskipulags iðnaðarsvæðis á Bakka. Skipulaginu er ætlað að mynda að grunn að lóð undir gagnaver norðan spennivirkis Landsnets austan þjóðvegar auk þess sem horft er til þess að skipta áður ódeiliskipulögðu svæði vestan þjóðvegar upp í tvær stórar lóðir ætlaðar undir móbergsvinnslu annarsvegar og fiskeldi hinsvegar. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagstillaga innihaldi hugmynd að undirgöngum undir þjóðveg vegna efnisflutninga milli svæða.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna skipulagslýsinguna samkvæmt ákvæðum skipulagslaga.
10.Ósk um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir Pizzakofann
Málsnúmer 202602106Vakta málsnúmer
Jón Ásþór Sigurðarson og Ylenia Barreto Acosta óska framlengingar stöðuleyfis fyrir Pizzakofann sem stendur á lóðinni að Garðarsbraut 20 á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir áframhaldandi stöðuleyfi fyrir Pizzakofanum til loka mars 2027.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að tryggja að eftirlit verði haft með skólahúsinu á Raufarhöfn eftir að formleg skólastarfsemi leggst þar af. Ráðið felur sviðsstjóra að gera uppkast að umgengnisreglum í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviðs og leggja fyrir ráðið.