Fara í efni

Ósk um leyfi fyrir klæðningu og tveim gluggum á suðurhlið Hafnarstéttar 13

Málsnúmer 202603097

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 236. fundur - 31.03.2026

Gentle Giants - Hvalaferðir ehf óska leyfis til að setja tvo hringlaga glugga með opnanlegu fagi á suðurhlið Hafnarstéttar 13. Einnig er óskað leyfis til að klæða suðurhlið hússins með lerkiklæðningu í bland við múrsteina til samræmis við norðurhlið hússins. Fyrir liggur umsögn frá eldvarnareftirliti Norðurþings vegna málsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur að veggur Hafnarstéttar 13 sem liggur þétt upp við lóðarmörk að Hafnarstétt 15 verði að vera EI60 svo hann rýri ekki byggingarrétt aðliggjandi óbyggðar lóðar skv. gildandi deiliskipulagi. Ráðið fellst því ekki á opnanleg gluggafög við lóðarmörk. Ráðið getur hinsvegar fallist á að settir verði upp gluggar á vegginn með fullnægjandi eldvörn. Ekki eru gerðar athugasemdir við að timburklæðning verði notuð utan á vegginn.