Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sat fundinn undir lið 7.
1.Instavolt hleðslustöðvar Kópasker Raufarhöfn
Málsnúmer 202603106Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja drög að samningum milli Norðurþings og InstaVolt um uppsetningu hraðhleðslustöðva á Kópaskeri og Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög milli InstaVolt og Norðurþings og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ljúka við gerð þeirra.
Í samningunum kemur fram að InstaVolt komi upp allt að tveimur rafhleðslustöðvum á Kópaskeri, eigi síðar en 18 mánuðum eftir undirritun samnings, og allt að tveimur rafhleðslustöðvum á Raufarhöfn, eigi síðar en 24 mánuðum frá undirritun.
2.Áframhald á notkun á Skýi
Málsnúmer 202603118Vakta málsnúmer
Skólastjóri Borgarhólsskóla hefur óskað eftir að hafa Skýið til afnota næsta skólaár (2026-2027).
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að ráðstafa Skýinu til áframhaldandi afnota fyrir skólastarf Borgarhólsskóla.
3.Umsókn um leyfi til að setja upp upplýsingarskilti við Tankana á Raufarhöfn
Málsnúmer 202603131Vakta málsnúmer
Ásdís Thoroddsen sækir um leyfi til að setja upp upplýsingaskilti við Tankana á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að ræða nánar við umsækjanda um mögulega aðkomu að tönkunum og staðsetningu upplýsingaskiltis.
4.Erindi frá Veitingahúsinu Setbergi ehf.
Málsnúmer 202603110Vakta málsnúmer
Setberg ehf óskar endurupptöku máls nr. 202209045 þar sem fyrirtækinu var synjað um samþykki fyrir lóðarstækkun sem nemur sex bílastæðum við Garðarsbraut, sunnan núverandi lóðar fyrirtækisins.
Skipulags- og framkvæmdaráð frestar málinu.
5.Umsókn um stöðuleyfi fyrir tvo 20 ft. einangraða íbúðargáma við Stekkjarhvamm 7
Málsnúmer 202603095Vakta málsnúmer
Matthías Þór Hákonarson óskar stöðuleyfis fyrir tvo íbúðargáma á frístundahúsalóð R&M eigna ehf að Stekkjarhvammi 9 í Reykjahverfi. Með erindi fylgir afstöðumynd.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að veita stöðuleyfi fyrir gámunum til eins árs, þ.e. til loka mars 2027.
6.Ósk um leyfi fyrir klæðningu og tveim gluggum á suðurhlið Hafnarstéttar 13
Málsnúmer 202603097Vakta málsnúmer
Gentle Giants - Hvalaferðir ehf óska leyfis til að setja tvo hringlaga glugga með opnanlegu fagi á suðurhlið Hafnarstéttar 13. Einnig er óskað leyfis til að klæða suðurhlið hússins með lerkiklæðningu í bland við múrsteina til samræmis við norðurhlið hússins. Fyrir liggur umsögn frá eldvarnareftirliti Norðurþings vegna málsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur að veggur Hafnarstéttar 13 sem liggur þétt upp við lóðarmörk að Hafnarstétt 15 verði að vera EI60 svo hann rýri ekki byggingarrétt aðliggjandi óbyggðar lóðar skv. gildandi deiliskipulagi. Ráðið fellst því ekki á opnanleg gluggafög við lóðarmörk. Ráðið getur hinsvegar fallist á að settir verði upp gluggar á vegginn með fullnægjandi eldvörn. Ekki eru gerðar athugasemdir við að timburklæðning verði notuð utan á vegginn.
7.Bygging hjúkrunarheimilis að Auðbrekku 2 Húsavík
Málsnúmer 202603134Vakta málsnúmer
Fyrir liggur að uppbygging hjúkrunarheimilis mun hefjast á næstu mánuðum og sveitarfélagið þarf því að huga að sínum framkvæmdum í tengslum við það. Kynntar voru fyrirliggjandi hugmyndir Laka ehf að uppbyggingu lóðarinnar, en þær fela í sér 4.250 m² byggingu með 60 nýjum hjúkrunarrýmum. Aðalhönnuður fyrirliggjandi hugmynda er Hulda Jónsdóttir arkitekt hjá Hjark arkitektum. Aðalinngangur nýs hjúkrunarheimilis verður um Auðbrekku en aðgengi starfsfólks frá Skálabrekku.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að láta hanna vegtengingar að lóðarmörkum og undirbúa gatnagerð í Auðbrekku og Skálabrekku.
Fundi slitið - kl. 15:00.