Bygging hjúkrunarheimilis að Auðbrekku 2 Húsavík
Málsnúmer 202603134
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 236. fundur - 31.03.2026
Fyrir liggur að uppbygging hjúkrunarheimilis mun hefjast á næstu mánuðum og sveitarfélagið þarf því að huga að sínum framkvæmdum í tengslum við það. Kynntar voru fyrirliggjandi hugmyndir Laka ehf að uppbyggingu lóðarinnar, en þær fela í sér 4.250 m² byggingu með 60 nýjum hjúkrunarrýmum. Aðalhönnuður fyrirliggjandi hugmynda er Hulda Jónsdóttir arkitekt hjá Hjark arkitektum. Aðalinngangur nýs hjúkrunarheimilis verður um Auðbrekku en aðgengi starfsfólks frá Skálabrekku.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að láta hanna vegtengingar að lóðarmörkum og undirbúa gatnagerð í Auðbrekku og Skálabrekku.