Framlenging á leigusamningi
Málsnúmer 202607045
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 524. fundur - 21.07.2026
Fyrir byggðarráði liggur framlenging á leigusamningi sem var til tveggja ára að Túngötu 1, neðri hæð. Framlengingin er 1 ár og gildir samningurinn til 15. október 2027.
Rúnar óskar bókað: Sveitarfélagið rekur og leigir tvö húsnæði undir starfsemi stjórnsýslu og félagsþjónustu. Leigukostnaður er nú um 30 millj. á ári. Það er mat mitt að að fara skuli í nauðsynlegar endurbætur á Ketilsbraut 7-9 eins fljótt og auðið er og flytja starfsemina aftur þangað þegar nauðsynlegum lagfæringum er lokið.
Kjartan, Helena og Eysteinn óska bókað: Framlenging leigusamnings sem fyrir fundinum liggur tryggir það að allir leigusamningar sveitarfélagsins séu til endurskoðunar á sama tíma eða í október 2027. Fjárhags og undirbúningsvinna fer fram á haustmánuðum vegna húsnæðismála sveitarfélagsins og verður eitt meginverkefni sveitarstjórnar.
Salbjörg tekur undir báðar bókanirnar.