Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

524. fundur 21. júlí 2026 kl. 08:30 - 10:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður
  • Salbjörg Matthíasdóttir varamaður
    Aðalmaður: Aldey Unnar Traustadóttir
  • Kjartan Páll Þórarinsson formaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
  • Rúnar Traustason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Beiðni um styrk

Málsnúmer 202607046Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur beiðni um styrk vegna þáttöku á heimsmeistaramóti fjárhunda Border Collie fjárhunda (ISDS World Trial 2026) að upphæð 120 þ.kr.
Byggðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 120 þ.kr.

2.Framlenging á leigusamningi

Málsnúmer 202607045Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur framlenging á leigusamningi sem var til tveggja ára að Túngötu 1, neðri hæð. Framlengingin er 1 ár og gildir samningurinn til 15. október 2027.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og felur sveitarstjóra að undirrita hann.

Rúnar óskar bókað: Sveitarfélagið rekur og leigir tvö húsnæði undir starfsemi stjórnsýslu og félagsþjónustu. Leigukostnaður er nú um 30 millj. á ári. Það er mat mitt að að fara skuli í nauðsynlegar endurbætur á Ketilsbraut 7-9 eins fljótt og auðið er og flytja starfsemina aftur þangað þegar nauðsynlegum lagfæringum er lokið.

Kjartan, Helena og Eysteinn óska bókað: Framlenging leigusamnings sem fyrir fundinum liggur tryggir það að allir leigusamningar sveitarfélagsins séu til endurskoðunar á sama tíma eða í október 2027. Fjárhags og undirbúningsvinna fer fram á haustmánuðum vegna húsnæðismála sveitarfélagsins og verður eitt meginverkefni sveitarstjórnar.

Salbjörg tekur undir báðar bókanirnar.

3.Sjúkraflug á Húsavíkurflugvöll

Málsnúmer 202503005Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja samningsdrög til kynningar.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að funda um samningsdrögin með fulltrúum Isavia og leggja drögin fyrir ráðið að nýju.

4.Endurskoðun fjallskilasamþykktar fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps

Málsnúmer 202607037Vakta málsnúmer

Í gildi er fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps sem tók gildi 12. maí 2023. Þó samþykktin sé ekki gömul þá eru frá samþykkt hennar orðnar breytingar varðandi nýtingu og umhverfi fjallskila sem gera að verkum að sveitarstjórn vill kalla til samráðs og yfirfara framkvæmd og skipulag fjallskilamála með hagaðilum. Einnig þarf að uppfæra samþykktina með tilliti til þess að Héraðsnefnd Þingeyinga er ekki lengur starfandi en samþykktin var unnin í umboði hennar.

"Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar leggur til, að þau sveitarfélög sem standa að samþykktinni, skipi í nefnd sem hefur það að markmiði að endurskoða samþykktina með tilliti til breytts stjórnskipulags.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda erindi á aðildarsveitarfélög svo að vinna við endurskoðun geti hafist."
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vera í sambandi við Þingeyjarsveit og leggja málið fyrir ráðið að nýju.

5.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga kynningarbréf

Málsnúmer 202607038Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur kynningarbréf frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

6.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum kynning

Málsnúmer 202607042Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur kynningarbréf frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202603130Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var þann 29. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar fundargerð stjórnar SSNE frá 84. fundi þann 30. júní sl.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2024

Málsnúmer 202403007Vakta málsnúmer

Fundargerð 126. fundar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Lagt fram til kynningar.

10.Fjölskylduráð - 242

Málsnúmer 2606004FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 242. fundar fjölskylduráðs frá 23. júní sl.
Lagt fram til kynningar.

11.Fjölskylduráð - 243

Málsnúmer 2606012FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 243. fundar fjölskylduráðs frá 7. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

12.Skipulags- og framkvæmdaráð - 239

Málsnúmer 2606005FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 239. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs frá 23. júní sl.
Lagt fram til kynningar.

13.Skipulags- og framkvæmdaráð - 240

Málsnúmer 2606013FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 240. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs frá 7. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

14.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 45

Málsnúmer 2606008FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 45. fundar stjórnar Hafnasjóðs Norðurþings frá 9. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

15.Orkuveita Húsavíkur ohf - 279

Málsnúmer 2606010FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 279. fundar stjórnar Orkuveitu Húsavíkur frá 7. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

16.Orkuveita Húsavíkur ohf - 280

Málsnúmer 2606011FVakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 280. fundar stjórnar Orkuveitu Húsavíkur frá 7. júlí sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.