Tímabundin breyting á fyrirkomulagi heimsendingar matar á Húsavík
Málsnúmer 202608109
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 245. fundur - 25.08.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur til umfjöllunar hvernig haga skuli gjaldtöku fyrir heimsendan mat vegna tímabundinnar flutnings matseldar frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands til Gamla Bauks. Breytingin stendur frá 17. ágúst til 31. desember 2026 og hefur í för með sér 200 kr. hækkun á hvern matarskammt.
Fjölskylduráð samþykkir að gjaldataka fyrir heimsendan mat verði óbreytt eða 1.800 kr. hver matarskammtur.