Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Akstursáætlun skólabíls veturinn 2026-2027
Málsnúmer 202608129Vakta málsnúmer
Fyrir liggur til kynningar akstursáætlun skólabíls fyrir Öxarfjarðarskóla og Borgarhólsskóla fyrir skólaárið 2026-2027.
Lagt fram til kynningar.
2.Borgarhólsskóli - Erindi varðandi öryggismál í skólanum.
Málsnúmer 202608069Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar erindi skólastjóra Borgarhólsskóla varðandi öryggismál í skólanum.
Fjölskylduráð þakkar áheyrnarfulltrúum Borgarhólsskóla fyrir komuna og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
3.Íslenska æskulýðsrannsóknin 2026
Málsnúmer 202512069Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar heildarniðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknar í Norðurþingi vorið 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.Umsókn um styrk vegna hreyfidags 60 ára og eldri
Málsnúmer 202608063Vakta málsnúmer
Félag eldri borgara á Húsavík og nágrennis og Héraðssamband Þingeyinga sækja um styrk vegna hreyfidags eldri borgara sem haldinn verður á Laugum í Reykjadal 12 september n.k.
Markmiðið er að sem flestir eldri borgarar geti sótt þennan viðburð nýtt sér fræðslu og kynningu á skemmtilegri hreyfingu.
Sótt er um styrk að upphæð 50.000 kr.
Markmiðið er að sem flestir eldri borgarar geti sótt þennan viðburð nýtt sér fræðslu og kynningu á skemmtilegri hreyfingu.
Sótt er um styrk að upphæð 50.000 kr.
Fjölskylduráð sér sér ekki fært að veita styrk þar sem verkefnið fellur ekki að úthlutunarreglum sjóða ráðsins.
5.Ósk um tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE
Málsnúmer 202608055Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur ósk frá SSNE um að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa sinn í fjölmenningarráð SSNE.
Fjölskylduráð tilnefnir fjölmenningarfulltrúa Norðurþings til setu í fjölmenningarráði SSNE.
6.Menningardagar á Raufarhöfn 2026
Málsnúmer 202608110Vakta málsnúmer
Árdís Inga Höskuldsdóttir óskar, fyrir hönd Menningardaganefndar á Raufarhöfn, eftir styrk vegna Menningardaga 2026 á Raufarhöfn. Gert er ráð fyrir styrk vegna Menningardaganna í fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2026.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Menningardaganefnd á Raufarhöfn styrk að fjárhæð 393.000 kr. vegna Menningardaga á Raufarhöfn 2026, í samræmi við fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2026.
7.Samstarfssamningur Hestamannafélagsins Grana og Norðurþings
Málsnúmer 202608050Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir ósk um að hefja samræður vegna endurnýjunar á samstarfssamningi sem rennur úr 31.12.2026.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að ganga til samninga við Hestamannafélagið Grana í samræmi við umræður á fundinum.
8.Skólaakstur í Norðurþingi 2025-2029 - samningar
Málsnúmer 202601021Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir samningur við foreldra um þáttöku í skólaakstri í veg fyrir skólabíl.
Fjölskylduráð samþykkir framlagðann samning við foreldra um þáttöku í skólaakstri í Norðurþingi.
9.Tímabundin breyting á fyrirkomulagi heimsendingar matar á Húsavík
Málsnúmer 202608109Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til umfjöllunar hvernig haga skuli gjaldtöku fyrir heimsendan mat vegna tímabundinnar flutnings matseldar frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands til Gamla Bauks. Breytingin stendur frá 17. ágúst til 31. desember 2026 og hefur í för með sér 200 kr. hækkun á hvern matarskammt.
Fjölskylduráð samþykkir að gjaldataka fyrir heimsendan mat verði óbreytt eða 1.800 kr. hver matarskammtur.
10.Öldungaráð 2026-2030
Málsnúmer 202606128Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja tilnefningar til öldungaráðs fyrir tímabilið 2026-2030.
Fjölskylduráð tilnefnir eftirfarandi í öldungaráð:
Regína Sigurðarsdóttir , Kristjana Bergsdóttir og Kristín S. Gunnarsdóttir f.h. eldri borgara í Norðurþingi
Steinþór Þráinsson f.h. Þingeyjarsveitar
Jón Gíslason f.h. Langanesbyggðar
Smári Kárason f.h. Tjörneshrepps
Kristjana Lilja Einarsdóttir verður fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu hjá Norðurþingi verður starfsmaður ráðsins

11.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2026-2030
Málsnúmer 202606127Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja tilnefningar í Notendaráð fatlaðs fólks fyrir tímabilið 2026-2030.
Fjölskylduráð tilnefnir eftirfarandi í Notendaráð:
Hermína Hreiðarsdóttir verður fulltrúi fyrir Einstök börn
Ásta Björk Aðalgeirsdóttir verður fulltrúi Einhverfusamtakanna
Dagný Þóra Gylfadóttir verður fulltrúi fyrir Hetjurnar - félag langveikra barna á Norðurlandi
Fulltrúi minnihluta verður Ágúst Sigurður Óskarsson
Fulltrúar meirihluta verða Andreas Blensner og Áslaug Guðfinna Friðfinnsdóttir
Kristjana Lilja Einarsdóttir, verkefnastjóri í heimahjúkrun verður fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
Bryndís Edda Benediktsdóttir, verður fulltrúi þjónustuþega
Rebekka vék af fundi undir þessum lið

Fundi slitið - kl. 11:00.
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, Ingólfur Jónsson, fulltrúi kennara og Daniel Annisius, fulltrúi foreldraráðs sátu fundinn undir liðum 1 og 2.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 5 og 6.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 7 og 8.
Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálstjóri, sat fundinn undir liðum 9-11.