Menningardagar á Raufarhöfn 2026
Málsnúmer 202608110
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 245. fundur - 25.08.2026
Árdís Inga Höskuldsdóttir óskar, fyrir hönd Menningardaganefndar á Raufarhöfn, eftir styrk vegna Menningardaga 2026 á Raufarhöfn. Gert er ráð fyrir styrk vegna Menningardaganna í fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2026.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Menningardaganefnd á Raufarhöfn styrk að fjárhæð 393.000 kr. vegna Menningardaga á Raufarhöfn 2026, í samræmi við fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2026.