Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

252. fundur 22. apríl 2024 kl. 11:00 - 12:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Valdimar Halldórsson varaformaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson varamaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá

1.Tillaga um lækkun á gjaldskrár OH

Málsnúmer 202404046Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. liggur eftirfarandi tillaga:

Undirritaður leggur til að gjaldskrárhækkun Orkuveitu Húsavíkur ohf verði lækkuð úr 5,0% í 3,5% fyrir árið 2024. Þetta er í samræmi við tilmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga til sveitarfélaga sem lögð voru fram í tengslum við nýlega samþykkta kjarasamninga á vinnumarkaði sem miða að lækkun á verðbólgu og vöxtum. Orkuveitan er auk þess í góðri stöðu til að lækka aðeins gjaldskrárhækkun til íbúa sveitarfélagsins í ljósi mjög sterkrar fjárhagslegrar stöðu".

Valdimar Halldórsson.
Undanfarin ár hefur stjórn Orkuveitu Húsavíkur meðvitað haldið verðhækkunum í lágmarki og þar af leiðandi hafa hækkanir verið mjög hóflegar. Hækkanirnar hafa verið það hóflegar að þær hafa ekki náð að halda í við hækkun vísitölu og almenna þróun verðlags. Síðasta gjaldskrárhækkun var engin undantekning og er því svo komið að verðskrá Orkuveitu Húsavíkur fyrir heitt vatn er sú lægsta á norðurlandi eystra samkvæmt mælaborði Byggðastofnunar.

Það er mat meirihlutar stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf. að ekki sé tilefni til að breyta af stefnu og verða því þær hækkanir sem samþykktar voru á 249. fundi stjórnar Orkuveitunnar þann 14. október, 2023, óbreyttar.

Valdimar Halldórsson óskar bókað eftirfarandi:

Með því að lækka ekki gjaldskrárhækkun Orkuveitu Húsavíkur niður í 3,5% eins og mælst er til af aðilum vinnumarkaðarins og Sambandi sveitarfélaga í tengslum við kjarasamningagerð mun hægja á því að vextir og verðbólga lækki. Það eru ekki góð skilaboð í því.
Valdimar Halldórsson

2.Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur fyrir árið 2023

Málsnúmer 202404049Vakta málsnúmer

Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2023 lagður fram til samþykktar og undirritunar.
Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2023 er samþykktur og undirritaður.

3.Umsókn um styrk úr Samfélagssjóði OH fyrir leiksýningu

Málsnúmer 202403070Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn liggur umsókn um styrk úr Samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur ohf. fyrir leiksýningu.
Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur liggur ósk um styrk vegna leiksýningarinnar Óvitar.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. samþykkir að leggja til 200.000.kr í verkefnið úr Samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur ohf.

4.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála

Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer

Rekstrarstjóri fer yfir helstu mál Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar yfirferð rekstrarstjóra.

Fundi slitið - kl. 12:00.