Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

22. apríl 2024 kl. 13:00 - 13:40 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Valdimar Halldórsson varaformaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson varamaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitastjóri stjórnaði fundi.

Bergþór Bjarnason fjármálastjóri sat fundinn sem fulltrúi eigenda.

Níels Guðmundsson endurskoðandi frá ENOR ehf. sat fundinn og fór yfir ársreikninginn.

1.Aðalfundur OH 2024 - Starfsemi OH á árinu 2023

Málsnúmer 202404039Vakta málsnúmer

Staða og starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári skýrð fyrir hluthafa félagsins.
Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf. fór yfir starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári og skýrir frá því helsta sem markað hefur rekstur OH.

2.Aðalfundur OH 2024 - Ársreikningur vegna rekstrarársins 2023

Málsnúmer 202404040Vakta málsnúmer

Undirritaður ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2022 lagður fram til samþykktar ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins.
Stjórn þakkar Níels Guðmundssyni endurskoðanda fyrir yfirferð reikninga. Ársreikningur samþykktur.

3.Aðalfundur OH 2024 - Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðartaps á reikningsárinu

Málsnúmer 202404041Vakta málsnúmer

Tillaga borin upp til samþykktar um hvernig hagnaði/tapi félagsins á reikningsárinu skuli ráðstafað.
Fyrir liggur tillaga frá eiganda félagsins um að greiddur verði út arður af rekstrar- og söluhagnaði eigna undanfarin ár, að undanskildum hagnaði af rekstri vatns- og fráveitu og að arðgreiðsla nemi kr. 66.000.000.

Tillaga samþykkt.

4.Aðalfundur OH 2024 - Kjör stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf

Málsnúmer 202404042Vakta málsnúmer

Tillaga hluthafa að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. fyrir komandi starfsár félagsins borin upp til samþykktar.
Tillaga hluthafa er að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Aðalmenn: Sigurgeir Höskuldsson (D), Bylgja Steingrímsdóttir (B), Valdimar Halldórsson (V)
Varamenn: Hafrún Olgeirsdóttir (D), Eysteinn Heiðar Kristjánsson (B) Ingibjörg Benediktsdóttir (V)

Samþykkt.

5.Aðalfundur OH 2024 - Kjör endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf

Málsnúmer 202404043Vakta málsnúmer

Tillaga um endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf. á komandi rekstrarári borin upp til samþykktar.
Tillaga liggur fyrir um að ENOR ehf. verði áfram endurskoðandi félagsins.

Tillaga samþykkt.

6.Aðalfundur OH 2024 - Ákvörðun um laun stjórnarmanna OH

Málsnúmer 202404044Vakta málsnúmer

Ákvörðun skal tekin um laun stjórnarmanna fyrir störf þeirra í þágu félagsins.
Tillaga liggur fyrir um að greiðslur til stjórnarmanna verði til samræmis við greiðslur fyrir nefndarsetu hjá Norðurþingi.

Tillagan samþykkt.

7.Aðalfundur OH 2024 - Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál

Málsnúmer 202404045Vakta málsnúmer

Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Engin mál borin upp undir þessum fundarlið.

Fundi slitið - kl. 13:40.