Orkuveita Húsavíkur ohf
Dagskrá
1.Syntholene óskar eftir leigulóð og stofnþjónustu í Hrísmóum
Málsnúmer 202602036Vakta málsnúmer
Syntholene óskar eftir að fá leigða spildu undir tilraunastöð félagsins á lageraðstöðu Orkuveitu Húsavíkur að Hrísmóum, ásamt aðgang að heitu og köldu vatni.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða kynningu og tekur jákvætt í erindið og felur rekstrarstjóra að vinna málið áfram.
2.Grunnverð fyrir sumarhús, frístundahús, verbúðir, gripahús og sambærileg hús.
Málsnúmer 202602038Vakta málsnúmer
Hestamannafélagið Grani óskar hér með fyrir hönd húseigenda í Traðagerði um breytta aðferð við gjaldtöku fyrir heitt vatn.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur felur rekstrarstjóra að ræða við fulltrúa húseigenda um innheimtu á heitu vatni.
3.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála
Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer
Rekstrarstjóri fer yfir helstu mál Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða yfirferð rekstrarstjóra.
Fundi slitið - kl. 15:55.