Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

274. fundur 20. mars 2026 kl. 14:00 - 16:30 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Valdimar Halldórsson varaformaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varamaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá

1.Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf.fyrir árið 2025

Málsnúmer 202603099Vakta málsnúmer

Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2025 lagður fram til samþykktar og undirritunar.
Hólmgrímur Bjarnason og Stefanía Helga Stefánsdóttir frá Deloitte auk Níels Guðmundssonar frá ENOR kynntu ársreikning fyrir árið 2025 fyrir stjórn. Stjórn þakkar góða yfirferð og samþykkir ársreikninginn.

2.Umboð vegna aðalfunda aðildafélaga

Málsnúmer 202202085Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að veita stjórnarformanni og rekstrarstjóra að fara með umboð OH á aðalfundum í félögum sem OH á hlutdeild í.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. veitir stjórnarformanni og rekstrarstjóra umboð félagsins á aðalfundum í félögum sem Orkuveitan á hlutdeild í.

3.Endurskoðun orkusölusamninga

Málsnúmer 202602071Vakta málsnúmer

Valdimar Halldórsson óskar eftir umræðum um Orkusölusamninga ásamt afsláttarkjörum.
Undirritaður óskaði nýlega eftir upplýsingum um viðskiptakjör fimm stærstu viðskiptavina OH vegna sölu á heitu vatni. Í þeim gögnum kom í ljós að fáir stórir viðskiptavinir félagsins njóta gríðarlega mikils afsláttar frá gildandi gjaldskrá og hefur svo verið um langt árabil. OH hefur orðið af miklum tekjum vegna þessara samninga á síðustu árum og þeir eru ósanngjarnir gagnvart öðrum viðskiptavinum félagsins sem njóta ekki afsláttar.
Ég legg til að rekstrarstjóra verði falið að leiðrétta þessi óeðlilegu viðskiptakjör og endurskoða samninga til hagsbóta fyrir OH.
Valdimar Halldórsson

Meirihluti stjórnar Orkuveitu Húsavíkur hafnar tillögu Valdimars og felur rekstarstjóra að hefja endurskoðun uppbyggingu fyrirkomulags á orkusölusamningum og afsláttarkjörum ásamt gjaldskrá veitunnar fyrir sölu á heitu vatni.
Sigurgeir Höskuldsson
Hjálmar Bogi Hafliðason

4.Vatnsleysi á svæði Skotfélags Húsavíkur

Málsnúmer 202602073Vakta málsnúmer

2019 var lagt vatn að svæði skotfélags Húsavíkur og hefur það þjónað svæðinu vel þar til haustið 2025 þegar í ljós kom að vatnsbólið hafi þornað algjörlega upp og ekkert vatn hefur komið úr því síðan.
Skotfélagið óskar því hér með að Orkuveitan aðtoði við að koma vatni á svlðið að nýju svo unnt sé að halda starfi þar áfram um ókomna tíð.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að standa straum að tengingu núverandi vatnslagnar við kerfi Orkuveitu Húsavíku við Bakkárlindir.

5.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202502069Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur trúnaðarmál.
Niðurstaða rituð í trúnaðarmálabók.

Fundi slitið - kl. 16:30.