Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

16. apríl 2026 kl. 13:00 - 13:30 Orkustöðin, Hrísmóum 1
Nefndarmenn
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Valdimar Halldórsson varaformaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá
Fulltrúi eigenda, Bergþór Bjarnason fjármálastjóri Norðurþings.
Fundarstjóri Sigurgeir Höskuldsson, stjórnarformaður OH.
Endurskoðandi Níels Guðmundsson frá Enor ehf. sat fundinn.

1.Aðalfundur OH 2026 - Starfsemi OH á árinu 2025

Málsnúmer 202604029Vakta málsnúmer

Staða og starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári skýrð fyrir hluthafa félagsins.
Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf. fór yfir starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári og skýrði frá því helsta sem markað hefur rekstur OH.

2.Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf.fyrir árið 2025

Málsnúmer 202603099Vakta málsnúmer

Undirritaður ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2025 lagður fram til staðfestingar ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins.
Stjórn þakkar Níels Guðmundssyni endurskoðanda fyrir yfirferð reikninga.

Ársreikningur staðfestur.

3.Aðalfundur OH 2026 - Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu

Málsnúmer 202604028Vakta málsnúmer

Tillaga borin upp til samþykktar um hvernig hagnaði/tapi félagsins á reikningsárinu skuli ráðstafað.
Fyrir liggur tillaga frá eiganda félagsins um að greiddur verði út arður af rekstrar- og söluhagnaði eigna undanfarin ár, að undanskildum hagnaði af rekstri vatns- og fráveitu og að arðgreiðsla nemi kr. 70.000.000.

Tillagan er samþykkt.

4.Aðalfundur OH 2026 - Kjör stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf

Málsnúmer 202604030Vakta málsnúmer

Tillaga hluthafa að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. fyrir komandi starfsár félagsins borin upp til samþykktar.
Tillaga hluthafa er að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Aðalmenn: Sigurgeir Höskuldsson (D), Bylgja Steingrímsdóttir (B), Valdimar Halldórsson (V)
Varamenn: Helena Eydís Ingólfsdóttir (D), Hjálmar Bogi Hafliðason (B) Ingibjörg Benediktsdóttir (V)

Tillagan er samþykkt.

5.Aðalfundur OH 2026 - Kjör endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf

Málsnúmer 202604033Vakta málsnúmer

Tillaga um endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf. á komandi rekstrarári borin upp til samþykktar.
Tillaga liggur fyrir um að ENOR ehf. verði áfram endurskoðandi félagsins.

Tillagan er samþykkt.

6.Aðalfundur OH 2026 - Ákvörðun um laun stjórnarmanna OH

Málsnúmer 202604035Vakta málsnúmer

Ákvörðun skal tekin um laun stjórnarmanna fyrir störf þeirra í þágu félagsins
Tillaga liggur fyrir um að greiðslur til stjórnarmanna verði til samræmis við greiðslur fyrir nefndarsetu hjá Norðurþingi.

Tillagan samþykkt.

7.Aðalfundur OH 2026 - Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál

Málsnúmer 202604036Vakta málsnúmer

Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Engin mál borin upp undir þessum fundarlið.

Stjórnarformaður færði starfsfólki og stjórnarfólki þakkir fyrir vel unnin störf á árinu.
Aðrir fundarmenn tóku undir þakkirnar.

Fundi slitið - kl. 13:30.