Orkuveita Húsavíkur ohf
Dagskrá
1.6.mánaðar uppgjör 2026 Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Málsnúmer 202609041Vakta málsnúmer
Yfirferð á 6 mánaðar uppgjöri Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Rekstrarstjóri fór yfir 6 mánaðar uppgjör. Stjórn þakkar góða yfirferð.
2.Endurnýjun samninga um áframhalda nýsköpunarverkefnisins Eimur
Málsnúmer 202609047Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn liggja drög að nýjum samningi um nýsköpunarverkefnið Eim. Núgildandi samningur rennur út í lok árs 2026. Nýr samningur gildir til 31.12.2029.
Stjórnar Orkuveitu Húsavíkur samþykkir áframhaldandi samstarf og felur rekstrarstjóra að ganga frá nýjum samningi við Eim ehf. Framlag Orkuveitu Húsavíkur verði 3 milljónir á ári til næstu þriggja ára.
3.Fráveitumál í Norðurþingi
Málsnúmer 202609060Vakta málsnúmer
Til umræðu er staða fráveitumála í Norðuþingi.
Á undanförnum árum hefur starfsfólk OH unnið markvisst að því að veita regnvatni í annan farveg en fráveitukerfi OH. Einnig hefur verið farið í greiningu á leiðum til að fækka útrásum fráveitna á starfsvæði OH.
Fækkun útrása og minnkun á óþarfa fráveituvatni dregur úr stofnkostnaði og rekstrarkostnaði hreinsistöðva.
Hafnar eru framkvæmdir á Raufarhöfn til að fækka útrásum.
Stjórn OH samþykkir að fela rekstrarstjóra OH að kostnaðarmeta að koma upp 2ja eða 3ja þrepa hreinsistöð við útrás norðan Norðlenska á Húsavík með tilliti til þess að setja verkið á framkvæmdaráætlun fyrir árið 2027 eða 2028.

4.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála
Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer
Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða kynningu rekstrarstjóra á stöðu helstu verkefna.
Fundi slitið - kl. 18:10.