Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

283. fundur 14. október 2026 kl. 15:30 - 17:30 Orkustöðin, Hrísmóum 1
Nefndarmenn
  • Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir formaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Orkuveitu Húsavíkur 2027

Málsnúmer 202610017Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. liggur fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 til samþykktar.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

2.Framkvæmdaáætlun Orkuveitu Húsavíkur 2027

Málsnúmer 202610019Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. liggur fyrir framkvæmdaáætlun fyrir árið 2027.
Farið var yfir framkvæmdaráætlun 2027. Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að ráðstöfunarfé til framkvæmda verði allt að 180m.kr. sem skiptist á milli kjarnastarfsemi Orkuveitunnar, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.

3.Gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur ohf.2027

Málsnúmer 202610020Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. taki ákvörðun um breytingu á gjaldskrá félagsins fyrir árið 2027.

www.oh.is/static/files/Verdskra/gjaldskra-oh-2026-heimasida.pdf

https://www.byggdastofnun.is/is/utgefid-efni/maelabord/orkukostnadur
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að hækka gjaldskrá félagsins um 2,5% frá 1. janúar 2027.

Ágúst Sigurður Óskarsson bókar:
M-Listi Samfélagsins fagnar þessari ákvörðun og hóflegum hækkunum sem styðja baráttu með samfélaginu gegn þrálátri verðbólgu og háu vaxtastigi s.l.ára.
Því er beint til Sveitarstjórnar Norðurþings að láta önnur gjöld s.s. vatnsgjald og fráveitugjald hafa sömu breytingar (að meðaltali).

4.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála

Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer

Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða kynningu rekstrarstjóra á stöðu helstu verkefna.
En þar ber helst að nefna að framkvæmd við kaldavatnlögn um Stóragarð gekk vel og eykur hún afhendingaröryggi til muna, verkið var unnið í góðri samvinnu við Rarik með nýtingu á skurðstæði, eftir er yfirborðsfrágangur.
Hafnar eru framkvæmdir við heimlagnir að nýju hjúkrunarheimili sem er í byggingu,
Framkvæmdir á Raufarhöfn við sameiningu útrása við Víkurbraut ganga vel en búið er að tengja lagnir og verið er að ganga frá yfirborði.
Endurnýjuð var einangrunarkápa á 400mm lögn við Þverá í Reykjahverfi eftir að bilun kom þar upp á einangrun á um 40 metra kafla.
Búið er að bora til viðbótar 4 hitastigulsholur, tilgangur holanna er jarðhitarannsóknir og leit að heitu vatni í landi Húsavíkur.

Fundi slitið - kl. 17:30.