Fara í efni

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings

41. fundur 05. mars 2026 kl. 08:30 - 09:45 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Eiður Pétursson formaður
  • Kristján Friðrik Sigurðsson varaformaður
  • Áki Hauksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
  • Bergur Elías Ágústsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Landsréttur dómur í máli nr.664 2024

Málsnúmer 202510110Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa Gentle Giants Hvalaferða ehf. á hendur Hafnasjóði Norðurþings vegna niðurstöðu og dóms Landsréttar í máli nr. 664- 2024.

Höfuðstóll kröfu skv. dómsmáli (2018-2023): 36.371.592 kr.
Höfuðstóll kröfu skv. seinna tímabili (2023-2025): 27.863.806 kr.
Vextir af báðum tímabilum: 23.451.830
Málskostnaður með dráttarvöxtum: 3.100.333 kr.

Samtals staða kröfu þann 6. febrúar 2026: 90.787.561 kr.
Á árunum 2015-2020 voru teknar ákveðnar stjórnvaldsákvarðanir af þáverandi ráðamönnum Norðurþings sem eldast afar illa. Þessar ákvarðanir voru teknar af meiri heift en skynsemi og það eru þessar ákvarðanir sem eru á gjalddaga núna og við sitjum uppi með það. Við erum í samtali við félögin sem stunda hvalaskoðun frá Húsavík og erum að reyna að leysa úr stöðunni og vonandi náum við einhverri lausn í málinu þar sem hvalaskoðunar tímabilið er að hefjast.

Það er hagur sveitarfélagsins og sérstaklega fyrirtækjanna sem byggja alla sína þjónustu á þeirri aðstöðu sem þeir hafa haft full afnot af til að þjónusta sína farþega og gesti að sátt sé um málið og þá helst til framtíðar.

2.Gjaldskrá hafna Norðurþings 2026

Málsnúmer 202510097Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur gjaldskrá ársins 2026 til síðari umræðu.
Stjórn Hafnasjóðs frestar málinu til næsta fundar.

3.AECO - Association of Arctic Expedition Cruise Operators

Málsnúmer 202603003Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur minnisblað sem samtök leiðangursskipa á norðurslóðum („AECO“), hafa látið vinna vegna álitamála sem snúa að virðisaukaskatti á skemmtiferðaskip vegna siglinga þeirra innan íslenskrar lögsögu.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur 480. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 16.febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

5.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar

Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja ýmis mál frá rekstrarstjóra hafna.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:45.