Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings 2025
Málsnúmer 202603074Vakta málsnúmer
Fyrir Hafnastjórn liggja drög að ársreikningi Hafnasjóðs Norðurþings 2025.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings samþykkir fyrirliggjandi ársreikning fyrir árið 2025 og vísar honum til staðfestingar í sveitarstjórn.
2.Krafa um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda
Málsnúmer 202603028Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Norðursiglingu ehf. vegna farþegagjalda að upphæð 90.634.454 kr.
Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
3.Krafa um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda
Málsnúmer 202603029Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Húsavík Adventures ehf. vegna farþegagjalda að upphæð 9.698.462 kr.
Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
4.Landsréttur dómur í máli nr.664 2024
Málsnúmer 202510110Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Gentle Giants- Hvalaferðum ehf. vegna farþegagjalda að upphæð kröfu skv. seinna tímabili (2023-2025): 27.863.806.
Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
5.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar
Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja mál frá rekstrarstjóra hafna sem tengjast rekstri og fjárhag.
Lagt fram til kynningar.
6.Til umsagnar 570.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202603138Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 570. mál - Leiðarmerki og öryggi siglinga. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að meta hvort þörf sé á að veita umsögn.
7.Fundargerð aðalfundar Cruise Iceland 2025
Málsnúmer 202603137Vakta málsnúmer
Aðalfundur Cruice Iceland haldinn þann 12. mars 2026 sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:00.