Fara í efni

Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings

32. fundur 05. ágúst 2014 kl. 12:00 - 14:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Erna Björnsdóttir formaður
  • Dögg Stefánsdóttir aðalmaður
  • Áslaug Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Kjartan Páll Þórarinsson aðalmaður
  • Jóhann Rúnar Pálsson Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá

1.Áhersluatriði Tómstunda- og æskulýðsnefndar á kjörtímabilinu.

Málsnúmer 201407073Vakta málsnúmer

Tómstunda- og æskulýðsnefnd kom saman og fór yfir ýmis málefni er tengjast sviðinu. M.a. mannvirkjastefnu, tómstundastarf, málefni nýrra íbúa o.fl..Tómstunda- og æskulýðsnefnd ákveður að skipa Örlyg Hnefil Örlygsson, Aðalbjörn Jóhannsson, Jóhönnu Kristjánsdóttur og Kristján Þór Magnússon í vinnuhóp er varðar Heilsuárið 2015 í Norðurþingi.Tómstunda- og æskulýðsnefnd ákveður að sumaropnunartími Sundlaugar Húsavíkur verði til 31.ágúst. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að vinna greinargerð með tillögur að breyttum opnunartíma.Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur það til við Bæjarráð Norðurþings að útbúinn verði upplýsingapakki með hagnýtum upplýsingum fyrir nýja íbúa sveitarfélagsins og settur á heimasíðu Norðurþings.

Fundi slitið - kl. 14:00.