Fara í efni

Æfing slökkviliðsins við sundlaug Húsavíkur 20.maí kl. 17:00

Í dag, 20. maí, verður slökkviliðið með æfingu í kjallara sundlaugarinnar. Æfingin hefst upp úr klukkan 17 og stendur eitthvað fram á kvöldið. Líkt verður eftir efnaslysi og munu okkar menn fara inn í eiturefnagöllum. Æfingin hefur engin áhrif á opnun sundlaugarinnar en bæjarbúar mega búast við að sjá talsverðan viðbúnað frá okkur utan við sundlaugarhúsið.

Meðfylgjandi mynd er frá eiturefnaæfingu síðasta vor.