Álagning gjalda
13.02.2026
Fréttir
Á 515. fundi sínum þann 12.febrúar sl. tók byggðarráð fyrir álagningu gjalda. Þar kom fram að álagning gjalda í Norðurþingi er 1.057 m.kr á árinu 2026 og hækkar um 7,1% á milli ára. Hækkun á árinu 2025 var 9,3% á milli ára.
Norðurþing er fjölkjarna sveitarfélag ásamt dreifbýli þannig að hækkun á fasteignagjöldum er misjöfn en í heild er hún rúmum 2% lægri en á árinu áður.
Skýring á álagningu fasteignagjalda hvað varðar staðsetningu og stærð eigna má finna með því að smella HÉR - Fasteigangjöld