Fara í efni

Allt er þá þrennt er - Sýningaropnanir

Allt er þá þrennt er - Sýningaropnanir

Þriðju helgina í mars verður Ingunn St. Svavarsdóttir, betur þekkt sem Yst, með sýningaropnanir á þremur stöðum í sveitarfélaginu. Yst er Listamaður Norðurþings og hefur nú þegar gefið bókasöfnum sveitarfélagsins listaverk.

Föstudaginn 20. mars kl 16:30 verður sýningaropnun á Bókasafninu á Húsavík. Þar verður fjölmenningin okkar ávörpuð með myndlist frá mæðrum og börnum á leikskólanum Grænuvöllum.

Laugardaginn 21. mars kl 14 verður sýningaropnun á Bókasafninu á Kópaskeri. Þar verður til sýnis myndlist nema við Öxarfjarðarskóla. Þá verður Benni Hemm Hemm með músíktilraunir ásamt unglingastigi skólans.

Sunnudaginn 22. mars kl. 14 verður sýningaropnun á Bókasafni Raufarhafnar. Þar verður Jónasar Friðriks minnst með myndverkum hans sjálfs, eldri borgara og vina skáldsins.