Kjörstaðir í Norðurþingi og annað sem þú þarft að vita
Sveitarstjórnarkosningar Norðurþings fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Utankjörfundaratkvæðisgreiðla fer fram hjá sýslumanni en einnig er verður hægt að kjósa utan kjörfundar á Kópaskeri og Raufarhöfn frá og með 4. maí á eftirfarandi dögum.
Raufarhöfn - skrifstofa Norðurþings, Aðalbraut 23
Alla virka daga frá og með 4. maí-15. maí frá klukkan 09:00-12:00 og skv. samkomulagi.
Kópasker - Skrifstofa Norðurþings, bakkagötu 10
6. maí frá 13:00-15:00
11. maí frá 13:00-15:00
13. maí frá 13:00-15:00
Meira má lesa um sveitarstjórnarkosningar 2026 inn á www.kosning.is
Hverjir eru í framboði til sveitarstjórnarkosninga 2026 í Norðurþingi?
Sex flokkar bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga 2026 í Norðurþingi. Með því að smella á hvern lista fyrir sig hér að neðan er hægt að sjá hverjir eru í framboði fyrir hvern lista.
Eftirfarandi flokkar bjóða sig fram:
- B listi - Framsóknarflokkurinn
- D listi - Sjálfstæðisflokkurinn
- M listi - Listi samfélagsins
- Ó listi - Óskalistinn
- S listi - Samfylkingin
- V listi - Listi velferðar
Hef ég rétt til að kjósa?
- Ef þú ert íslenskur ríkisborgari, með lögheimili á Íslandi og hefur náð 18 ára aldri, hefur þú rétt til að kjósa.
Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi hefur skráð lögheimili.
- Ef þú ert norrænn ríkisborgari, hefur náð 18 ára aldri og hefur lögheimili í sveitarfélaginu, hefur þú rétt til að kjósa.
Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi hefur skráð lögheimili.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem eru ekki frá Norðurlöndunum verða að hafa haft lögheimili á Íslandi í 3 ár samfellt fyrir kjördag til að eiga rétt á að kjósa.
Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi hefur skráð lögheimili.
- Ef þú ert íslenskur námsmaður á Norðurlöndunum með skráð lögheimili þar, verður þú að sækja sérstaklega um að kjósa HÉR.
Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi hafði síðast skráð lögheimili.
Hvar kýs ég, hvar er mín kjördeild?
Með því að fara inn á Þjóðskrá geturðu flett upp kennitölunni þinni og séð hvar þú átt að kjósa og hvort þú sért kjörskrá.
Fletta upp kennitölu
- Kjördeild I og II - Borgarhólskóli Húsavíkur
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörstaður er opinn 09:00-22:00. Gengið er inn að austanverðu (gegnt FSH og Íþrótthöllinni).
- Kjördeild III - Skúlagarður
Fyrir íbúa í Kelduhverfi. Kjörstaður er opinn 10:00-18:00.
- Kjördeild IV - Skólahúsið á Kópaskeri
Fyrir íbúa á Kópaskeri og Öxarfirði. Kjörstaður er opinn 10:00-18:00.
- Kjördeild V - Ráðhúsið á Raufarhöfn
Fyrir íbúa á Raufarhöfn
Ef þú getur ekki kostið á kjördag getur þú kosið utan kjörfundar.
Hvað þarf að hafa með mér á kjörstað?
Til að geta kosið þarf kjósandi að sýna fram á að hann sé sá sem hann segist vera.
Best er að koma með skilríki með mynd á kjörstað, t.d. ökuskírteini eða vegabréf, til þess að kjósandi geti gert grein fyrir sér.
Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar.
Hvernig fara greiði ég atkvæði?
HÉR getur þú lesið nánar um hvernig kosningar fara fram.
Landskjörstjórnin gaf út myndband árið 2025 þar sem farið er ítarlega yfir framkvæmd kosninga, þú getur horft á myndbandið HÉR.
Myndbandið er textað og með táknmálstúlk.
Aðstoð við kosningu
Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga. Aðstoðarmaður verður að vera að minnsta kosti 18 ára gamall og má ekki vera frambjóðandi eða tengjast frambjóðanda náið. Aðstoðarmaður má heldur ekki aðstoða fleiri en þrjá kjósendur í sömu kosningum.
Ef kjósandi velur sér annan aðstoðarmann en starfsmann kosninga verður sá aðili að fylla út þetta eyðublað.
Kjörseðlar með blindraletri verða tiltækir á kjörstað fyrir þá sem þurfa á því að halda.
Ég get ekki kosið á kjördag / Kjósa utan kjörfundar
Þeir sem ekki geta kosið á kjördag býðst að kjósa utan kjörfundar. Að kjósa utan kjörfundar þýðir að þú greiðir atkvæði fyrir kjördaginn sjálfan en á kjörstað á kjördaginn sjálfan. Það gerir þú með því að fara til sýslumanns.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Íslandi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí 2026 hófst 17. apríl 2026.
Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma á skrifstofum sýslumanna er að finna HÉR
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis
Kjósendur þurfa að kanna á vef utanríkisráðuneytisins hvort auglýstur hafi verið tími sem utankjörfundarkosning fer fram í viðkomandi sendiráði eða hjá ræðismanni. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er. Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila, t.d. með pósti eða einhver taki atkvæðið heim og komi því til skila.
Kjörskrá Norðurþings fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026 er aðgengileg á skrifstofum Norðurþings.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu utankjörfundaratkvæðagreiðsla er að finna á HÉR
Hverjir eru í kjörstjórn?
- Yfirkjörstjórn
- Karl Hreiðarsson, formaður
- Berglind Ragnarsdóttir
- Berglind Ósk Ingólfsdóttir
- Undirkjörstjórn 1 - Húsavík
- Jón Höskuldsson
- Jóna Mattíhasdóttir
- Erla Bjarnadóttir
- Unirkjörstjórn 2 - Húsavík
- Freyr Ingólfsson
- S. Rakel Matthíasdóttir
- Gunnhildur Gunnsteinsdóttir
- Unirkjörstjórn 3 - Kelduhverfi
- Ingveldur Árnadóttir
- Sigurfljóð Sveinbjörnsdóttir
- Sigrún Björg Víkingur
- Unirkjörstjórn 4 - Öxarfjörður
- Guðmundur S. Ólafsson
- Hulda Hörn Karlsdóttir
- Guðfinna Sigurbjörnsdóttir
- Unirkjörstjórn 5 - Raufarhöfn
- Svava Árnadóttir
- Sigrún Björnsdóttir
- Margrét Höskuldsdóttir
Annað sem gott er að vita
-Þú mátt ekki strika yfir eða breyta röðun frambjóðenda anna lista en þess sem þú kýst.
- Þú mátt ekki skrifa á kjörseðilinn eða nota önnur tákn.
- Enginn má sjá hvernig þú greiddir atkvæði.
- Þú getur fengið nýjan kjörseðil ef þú gerir mistök