Fara í efni

Alzheimersamtökin með fræðslu á Húsavík

Alzheimersamtökin halda reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem þau kynna starfsemi samtakanna og veita fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af meginmarkmiðunum er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Mánudaginn 2. júní kl. 17:00  verður fræðslufundur í Hlyn, húsnæði félags eldri borgara á Húsavík. 

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna munu halda utan um fræðslufundinn.

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.