Fara í efni

Áminning varðandi notkun textílgáma

Af gefnu tilefni vill Norðurþing vekja athygli á mikilvægi þess að vel sé gengið um textílgáma sveitarfélagsins.

Til að tryggja góða umgengni og að móttaka og endurvinnsla gangi sem best fyrir sig er mikilvægt að allur textíll sé settur í vel lokaða poka áður en honum er komið fyrir í gámunum.

Einnig er bent á að sýnileikafatnaður á ekki að fara í textílgámana.

Þá hefur borið á að töskur með fatnaði séu settar í gámana. Töskur eiga ekki að fara í textílgáma og eru íbúar vinsamlegast beðnir um að fjarlægja fatnað úr töskum og setja í lokaða poka.