Áttu þjóðbúning uppi í skáp?
21.05.2025
Tilkynningar
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní nálgast og gestir frá vinabæ Húsavíkur, Karlskoga í Svíþjóð, stefna á að heimsækja okkur þann dag. Að því tilefni viljum við hvetja þau sem eiga þjóðbúninga að koma þeim í notkun þennan dag, hvort sem er að skarta þeim sjálf eða finna niðja sem getur klæðst búningnum á hátíðarhöldunum þennan dag. Þetta er áskorun til allra sem eiga þjóðbúninga; peysuföt, upphlut, eldri aldabúninga, íslensku jakkafötin, þjóðbúninga frá öðrum löndum o.s.frv. Við vonumst eftir góðum undirtektum og að mynd dagsins verði fjölmennari en í fyrra.