Aukið umferðaröryggi í Norðurþingi
Norðurþing vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Markmið hennar er að búa til aðgerðaráætlun svo auka megi öryggi í sveitarfélaginu, fækka slysum og auka lífsgæði íbúa sem og annarra sem um sveitarfélagið ferðast óháð ferðamáta.
Mikilvægur grundvöllur vinnunnar er að kortleggja hætturnar í umferðinni. Kortlagningin hættustaða mun ekki bara byggja á hvar slysin hafa átt sér stað heldur einnig taka mið af mikilvægri upplifun íbúa á varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.
Því hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs þar sem öllum íbúum gefst tækifæri á að koma sínum ábendingum áleiðis. Norðurþing vill fá ábendingar frá íbúum varðandi hættustaði sem þeir upplifa í umferðinni ásamt kortlagningu á staðsetningu þeirra.
Sérstök ábendingagátt verður opin til 22. október nk. í gegnum eftirfarandi hlekk: https://arcg.is/1TiL4b2
Einnig er hægt að skanna QR kóðann til að komast á sömu síðu.