Best skreytta húsið á Mærudögum 2026
Litlagerði 5 var valið best skreytta húsið á Mærudögum 2026

Litlagerði 5, heimili Huldu Jónasdóttur og fjölskyldu, var valið best skreytta húsið á Mærudögum í ár.
Hulda hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í hverfisnefnd Bleika hverfisins og lagt ómælda vinnu, tíma og hjarta í að skapa skemmtilega og hlýlega Mærudagastemningu fyrir íbúa og gesti. Skreytingarnar við Litlagerði 5 endurspegla þann metnað og þann dugnað sem hún og fjölskylda hennar hafa sýnt hátíðinni í gegnum árin.
Norðurþing óskar Huldu Jónasdóttur og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar þeim um leið fyrir framlag þeirra til Mærudaga. Frumkvæði sem þetta skapar einstaka stemningu og gerir hátíðina enn líflegri og eftirminnilegri fyrir alla.