Fara í efni

Betri leikskóli - Breytingar á starfsreglum leikskóla og gjaldskrá

Starfs- og námsaðstæður í leikskólum Norðurþings hafa verið til umræðu á undanförnum árum. Helstu áskoranirnar eru í tengslum við undirbúningstíma starfsfólks, styttingu vinnutíma og forföll starfsfólks.

Til að koma til móts við þessar áskoranir og efla starfsemi leikskólanna hefur á undanförnum árum verið brugðist við með eftirfarandi úrræðum m.a.:

  • 6 klst. hámarksvistun 12-18 mánaða barna.
  • Forgangur starfsfólks að leikskólaplássum.
  • Starfsmannafsláttur af leikskólagjöldum.
  • Tekjutengdur afsláttur og systkinafsláttur fyrir fjölskyldur.
  • Samþættingarverkefni – Gjaldfrjálst íþróttastarf hluti af dvalartíma í leikskóla fyrir 4 og 5 ára börn. Sérskráning í Dymbilviku og kringum jól og áramót.
  • Stuðningur við starfsfólk í námi.

Þrátt fyrir ofangreint er það enn vandkvæðum bundið að tryggja kjarasamningsbundinn undirbúningstíma starfsfólks, mæta styttingu vinnutíma og þar af leiðandi að tryggja enn betur gæðastarf með börnum á leikskólanum, gott námsumhverfi og gott starfsumhverfi starfsfólks. Allt kallar þetta á frekari lausnir.

Markmiðin með breytingum á starfsreglum leikskóla nú eru að bæta starfsumhverfi, bæta námsumhverfi, mæta áhrifum kjarasamninga um styttingu vinnutíma, tryggja undirbúningstíma starfsfólks og fækka yfirvinnutímum og fjarvistum starfsfólks.

Leiðir til að ná markmiðum

Leiðirnar sem nú eru farnar byggja á úrræðum sem notuð hafa verið í öðrum sveitarfélögum a.m.k. síðastliðið ár og eru þær leiðir sem hafa gefist best í að bæta aðstæður á leikskólum þeirra sveitarfélaga. Þar má nefna Akureyri, Skagafjörð, Hafnarfjörð, Kópavog og Mosfellsbæ.

  1. Gjaldskrá vegna leikskólagjalda verður óbreytt 1. janúar -31. júlí.

  2. Hækkun tekjuviðmiða vegna tekjutengds afsláttar af leikskólagjöldum.
    Tekjuviðmið voru hækkuð 1. janúar 2025 um 6% og tekjutengd afsláttarkjör verða áfram 25%, 50% og 75%.

  3. Breyting á gjaldskrá 1. ágúst 2025
    Gjaldskrá vistunargjalds fyrir allt að sex tíma frá kl. 8-14 lækkar um 50% og vistunargjöld fyrir 7-8 tíma vistun lækkar miðað við fækkun um 20 skráningardaga á ári eða 9%. Öll gjaldskráin tekur eftir það 2,5% hækkun, til samræmis við stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024, frá og með 1. ágúst 2025.
    Hér má kynna sér gjaldskrá og tekjuviðmið varðandi tekjutengdan afslátt

  4.  Sérskráning – Allt að 20 dagar yfir skólaárið.
    Dagana í kringum jól og áramót, Dymbilviku, starfsdaga grunnskóla og "klemmudaga" (t.d. föstudagur eftir sumardaginn fyrsta eða uppstigningardag) verður tekin upp sérskráning og sérstakt gjald kr. 2.490 fyrir hvern dag innheimt vegna þeirra. Innleitt frá og með skólaárinu 2025-2026. Skráningardagar eru ákveðnir við samþykkt skóladagatals að vori. Við upphaf skólaárs er óskað eftir að foreldrar tilgreini þá skráningardaga sem þeir hyggjast nýta. Breytingar á nýtingu skráningardaga þarf að tilkynna fyrir 20. hvers mánaðar fyrir næsta mánuð þar á eftir.
    Leikskóla- og fæðisgjöld fyrir börn í 8 tíma vistun þar sem allir 17 sérskráningardagar skólaársins 2025-2026 eru nýttir hækka að meðaltali rétt um 1.600 krónur að meðaltali vegna sérskráningargjalds.

    Leikskóladagatal Lundarkots- leiskóladeildar Öxarfjarðarskóla
    Leikskóladagatal Grænuvalla:

  5. Lækka verulega gjaldskrá fyrir allt að 6 klst. vistun.
    Núverandi gjaldskrá fyrir vistun allt að sex tímum á milli kl. 8 og 14 verður lækkuð um 50%

Starfsreglur leikskóla Norðurþings