Fara í efni

Bókasafnsvörður á Raufarhöfn óskast

Bókasafnsvörður óskast í 10% starfshlutfalli á Raufarhöfn

Norðurþing óskar eftir að ráða bókasafnsvörð við bókasafnið á Raufarhöfn. Bókasafnið er staðsett í húsnæði Grunnskóla Raufarhafnar.

Starfssvið og helstu verkefni:S

  • Afgreiðsla og þjónusta við notendur bókasafnsins.
  • Aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit.
  • Skráning og flokkun safngagna í bókasafnskerfinu Alma.
  • Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum.
  • Umsjón með barnastarfi bókasafnsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni.
  • Hæfni til að vinna undir álagi.
  • Hreint sakavottorð.

 

Starfshlutfall og launakjör:

Um er að ræða 10% starfshlutfall og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

 

Umsókn
Sótt er um starfið hér á 50skill: https://jobs.50skills.com/nordurthing/is/44752

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2026.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá. Umsækjendum er einnig velkomið að senda kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til starfsins.

Nánari upplýsingar um starfið fást í tölvupósti á nele@nordurthing.is.

 

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið.